Hagvöxtur í Bandaríkjunum mælist miklu minni en spár gerðu ráð fyrir

Fjár­festing fyrir­tækja hefur ekki minnkað jafn mikið milli ára frá því árið 2009.

Hagvöxtur í Banda­ríkjunum var einungis 0,5 prósent á fyrstu þremum mánuðum ársins, sem var langt undir spám flestra greinenda. Flestar spár höfðu gert ráð fyrir 1,4 til tveggja prósenta hagvaxtar.

Á sama tíma í fyrra mældist hagvöxturinn 1,4 prósent.

Þetta eru miklar stærðir fyrir stærsta hagkerfi heimsins. Miklu munaði um að almenn neysla var minni en spár gerðu ráð fyrir en hún jókst um 1,9 prósent milli ára, en á sama tíma í fyrra var aukningin 2,4 prósent.

Fjár­festing fyrir­tækja féll niður um 5,9 prósent, sem er mesta fall fjár­festingar milli ára frá árið 2009, þegar fjármála­markaðir gengu í gegnum mikar hremmingar og kreppa var víða um heim.

Í umfjöllun Wall Street Journal og breska ríkis­útvarpsins BBC kemur fram að fjár­festing hjá stór­fyrirtækjum í olíu­iðnaði hafi falli saman nær alveg, eða um 86 prósent, og greinilegt að verðhrun á olíuverði, á síðustu sextán mánuðum er farið að hafa veruleg áhrif á fjár­festingar­ákvarðanir fyrirtæki í olíu­iðnaði.

Verðið á hráolíu­tunnunni í Banda­ríkjunum er nú í kringum 40 Bandaríkja­dali en það fór hæst í 115 Bandaríkja­dali fyrir um sextán mánuðum.

Þrátt fyrir að hagvöxtur hafi verið umtals­vert minni en flestar spár gerðu ráð fyrir þá hélt atvinnu­leysi áfram að minnka, og er nú komið niður í 4,8 prósent. Það fór hæst upp undir 10 prósent árið 2010.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár