„Ég fæ enn kökk í hálsinn þegar ég hugsa um örvæntinguna“

„Tíu ár og ég fæ enn kökk í hálsinn þegar ég hugsa um örvæntinguna sem ríkti hjá þeim sem voru að leita að fjölskyldu­meðlimum, þá sem sátu stjarfir og horfðu út í loftið eftir missi, þá sem sögðu manni sögur af börnunum sem þeir gátu ekki bjargað og horfðu á hverfa í flóð­bylgjunni og svo mætti áfram telja. Reglulega sé ég þetta fyrir mér, heyri grátinn, sé tilkynninga­töflurnar þar sem fólk auglýsti eftir sínum nánustu, finn lyktina....“

Þetta segir Stein­grímur Sævarr Ólafsson á Facebook síðu sinni í dag, í tilefni af því að tíu ár eru frá einum mann­skæðustu náttúru­hamförum í sögunni, þegar um tvö hundruð þúsund manns létust þegar flóð­bylgja skall á Tælandi og eyjum í nágrenni. Stein­grímur Sævarr var í hópi Íslendinga sem voru sendir á svæðið fljótlega eftir atburðina hörmulegu til að aðstoða fólk á svæðinu.

https://www.youtube.com/watch?v=RDOuwMj7Xzo
Á síðu sinni lýsir Stein­grímur Sævarr því sem fyrir augu bar með áhrifa­miklum hætti, og segir ferðina hafa gjör­breytt viðhorfi sínu til lífsins. Orðrétt segir hann:

„Fyrir tíu árum sléttum sat ég heima hjá mér að hita upp jóla­grautinn og narta í síðustu rjúpna­lærin, algjör­lega grunlaus um þær skelfi­legu hamfarir sem voru að bresta á í Asíu þegar flóð­bylgjan mikla skall á með þeim afleiðingum að um 200.000 manns létust.

Stein­grímur Sævarr Ólafsson.

steingrimur
stein­grimur

Enn síður grunaði mig að milli jóla og nýárs fengi ég símtal úr forsætis­ráðuneytinu þar sem ég var beðinn um að fara í sjúkra­flug til Tælands til að sækja slasaða Svía og flytja til síns heima.

Hópurinn sem fór út var gríðarlega vel skipaður læknum, hjúkrunar­fólki, björgunar­sveitar­mönnum, skipuleggjendum, starfs­mönnum sjúkra­bíla og svo mætti áfram telja. Og þá vantaði einn sem gæti verið tengi­liður milli yfirvalda á Íslandi, Tælandi og í Svíþjóð, einhvern sem gæti mögulega kjaftað sig út úr óvæntum vandræðum, einhvern sem gæti bjargað sér á skandinavísku, einhvern sem gæti skrifað um þetta og miðlað áfram. Símtalið sem mér barst kom mér jafn mikið á óvart og fjöl­skyldunni, sem eftir stutta umhugsun, gaf blessun sína fyrir því að ég tæki verkefnið að mér. Dagarnir sem í hönd fóru fyrir sléttum tíu árum eru jafn skýrir og þeir hefðu gerst fyrir ári síðan. Skyndi­kúrsar í hinu og þessu, bólu­setningar, skipulagningar­fundir, kynnast hetjunum sem sinntu alvöru verk­efnunum í ferðinni og síðast en ekki síst að undirbúa sig andlega.

Eins og maður hefði getað undirbúið sig undir það sem blasti við manni við komuna til Tælands.

Tíu ár og ég fæ enn kökk í hálsinn þegar ég hugsa um örvæntinguna sem ríkti hjá þeim sem voru að leita að fjölskyldu­meðlimum, þá sem sátu stjarfir og horfðu út í loftið eftir missi, þá sem sögðu manni sögur af börnunum sem þeir gátu ekki bjargað og horfðu á hverfa í flóð­bylgjunni og svo mætti áfram telja. Reglulega sé ég þetta fyrir mér, heyri grátinn, sé tilkynninga­töflurnar þar sem fólk auglýsti eftir sínum nánustu, finn lyktina...

Það er óhætt að segja að þetta hafi verið ferðalag sem ég kom ekki samur til baka úr. Hún gerbreytti lífs­viðhorfi mínu, hugmyndum mínum um verðmæti, vináttu, fjöl­skyldubönd og raunar öllu.

Þú getur ekki breytt gærdeginum og þú veist ekki hvernig morgun­dagurinn er; nýttu daginn í dag til hins ítrasta til að gera góða hluti, leyfa fjöl­skyldu og vinum að finna að þú ert til staðar. Dagurinn í dag skiptir máli.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár