Fengu ekki að laga gangstéttir borgarinnar vegna Landsréttardóms frá 2018

Verk­taka­fyr­ir­tækið Vörðu­berg átti nýlega lægsta til­boðið í gang­stétta­við­gerðir í Reykja­vík. Til­boð­inu var þó hafnað, þar sem eini hlut­hafi félags­ins, sam­kvæmt síð­asta árs­reikn­ingi, hlaut árið 2018 dóm í Lands­rétti fyrir ýmis brot í rekstri ann­arra félaga.

Fyrirtækið Vörðuberg uppfyllti ekki skilyrði um hæfi í útboði borgarinnar.
Fyr­ir­tækið Vörðu­berg upp­fyllti ekki skil­yrði um hæfi í útboði borg­ar­innar. Mynd: Bára Huld Beck

Innkaupa- og fram­kvæmda­ráð Reykja­vík­ur­borgar hefur, að feng­inni leið­sögn frá emb­ætti borg­ar­lög­manns, hafnað því að end­ur­skoða fyrri ákvörðun sína um að hafna til­boði frá verk­taka­fyr­ir­tæk­inu Vörðu­berg ehf. í 100 millj­óna króna gang­stétta­við­gerðir á vegum borg­ar­innar.

Málið var tekið fyrir á fundi ráðs­ins í síð­ustu viku.

Ástæðan fyrir því að til­boð­inu frá Vörðu­bergi var hafnað er sú að eini hlut­hafi þess, sam­kvæmt síð­asta birta árs­reikn­ingi, hlaut árið 2018 fjög­urra mán­aða skil­orðs­bund­inn dóm og marg­millj­óna króna sekt fyrir að skila ekki inn virð­is­auka­skatt­skýrslum og virð­is­auka­skatti nokk­urra fyr­ir­tækja þar sem hann var stjórn­ar­maður og fram­kvæmda­stjóri. Einnig var hann dæmdur fyrir að færa bók­hald fyr­ir­tækj­anna ekki með réttum hætti.

Vegna þess­ara brota telur borgin sig hafa laga­lega skyldu til þess að úti­loka Vörðu­berg frá útboð­inu, en sam­kvæmt lögum um opin­ber inn­kaup skal úti­loka þá hafa gerst sekir um svik­semi, með því að brjóta gegn skyldum um greiðslu opin­berra gjalda, líf­eyr­is­sjóðs­gjalda eða ann­arra lög­á­kveð­inna gjalda, frá þátt­töku í útboðum hjá hinu opin­bera.

Mjög sjald­gæft er að til þessa komi, sam­kvæmt svörum frá Reykja­vík­ur­borg, en þaðan gat Kjarninn ekki fengið dæmi um nein mál sem væru sam­bæri­lega vaxin, þegar eftir því var leitað.

Segja nýjan eiganda kominn að borðinu

Verk­taka­fyr­ir­tækið vill þó meina að ákvörðun borg­ar­innar stand­ist ekki skoðun, þar sem sá ein­stak­lingur sem um ræðir komi ekki lengur nærri rekstr­inum og fyr­ir­tækið hafi verið selt til nýs eig­anda í des­em­ber í fyrra. Sá ein­stak­lingur hafi ekki hlotið neinn dóm og ekki fyr­ir­tækið heldur.

Vörðu­berg fór því fram á að borgin end­ur­skoð­aði ákvörðun sína um að hafna til­boði fyr­ir­tæk­is­ins og sagð­ist sömu­leiðis áskilja sér rétt til þess að fara fram á skaða­bætur ef þeirri kröfu yrði hafnað, sem nú er búið að gera.

Það var gert eftir að borg­ar­lög­maður fjall­aði um málið, en í umsögn borg­ar­lög­manns kemur fram að þrátt fyrir að annar ein­stak­lingur sé nú skráður raun­veru­legu eig­andi félags­ins í fyr­ir­tækja­skrá skáki það ekki upp­lýs­ingum sem fram komi í árs­reikn­ingi eða sann­leiks­gildi þeirra um hver sé hlut­hafi félags.

Borg­ar­lög­maður nefnir í umfjöllun sinni um málið að eina sönn­unin sem Vörðu­berg hafi fært fram um meint eig­enda­skipti fyr­ir­tæk­is­ins sé full­yrð­ing bók­ara fyr­ir­tæk­is­ins, en sú fylgdi bréfi sem lög­manns­sþjón­ustan Draupnir sendi borg­inni eftir að búið var að hafna til­boði fyr­ir­tæk­is­ins af áður­nefndum ástæðum.

Buðu um 45 milljónum lægra en næsta fyrirtæki

Þegar til­boð í gang­stétt­ar­við­gerð­irnar voru opnuð í byrjun maí kom í ljós að Vörðu­berg var með lang­lægsta til­boðið. Fyr­ir­tækið bauð rúmar 92 millj­ónir króna í verkið, sem var með kostn­að­ar­á­ætlun upp á 100 millj­ónir króna. Sum­ar­garðar ehf., sem áttu nægst­lægsta til­boðið og hlutu verkið, buðu tæpar 137 millj­ónir króna í við­gerð­irnar. Einnig bár­ust til­boð frá Garða­smíði ehf. og Lóða­þjón­ust­unni ehf.

Auk þess sem áður hefur verið rakið veitti emb­ætti borg­ar­lög­manns kjörnum full­trúum inn­kaupa- og fram­kvæmda­ráðs þá leið­sögn að ekki væri hægt að fall­ast á kröfur Vörðu­bergs um að fá ákvörðun ráðs­ins end­ur­skoð­aða, þar sem engin heim­ild væri fyrir því að ógilda samn­ing borg­ar­innar við Sum­ar­garða ehf., sem komst á 26. maí.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár