VÆB: Sigur nýrrar kynslóðar

Z-kynslóðin er að taka við. Sjáið og trúið.

VÆB
VÆB Verður full­trúi Íslands í Eurovision í Basel í Sviss, 13. maí næst­kom­andi.

Sjaldan hefur máltækið„þeir fiska sem róa“ átt betur við. VÆB tapaði í Eurovision í fyrra en kom aftur, fyllt seiglu og reynslu, með lag sem er vitnis­burður um bæði sígildan veruleika Íslendinga og yfirburði nýrrar kynslóðar: Ekki aðeins glitrandi eins og sumargots­síld heldur með útþrá eldislax við kvíarrof. 

Að vera séður er að vera til

Í síðustu söngva­keppni trommuðu VÆB upp með ádeilu á veruleika okkar: Líf mitt er bíómynd. Þar birtist óumsemjanleg einstaklings­hyggja í bland við voyeurisma: Þörfina fyrir að vera viðfangs­efni áhorfs og aðdáunar.

„Ég geri það sem mig langar til, því líf mitt er bíómynd, svo náðu í poppið, kallinn,“ sungu þeir. Undir­liggjandi en lítt dulin er síðan ýmist þörf eða krafa um að skara fram úr á forsendum tilvistar sinnar einnar og sér. „Ég mæti tilbúinn, ég vil fá verð­launin, því að lífið mitt er langbesta kvik­myndin.“

Tilkall kynslóðar

Z-kynslóðin, sem kemur í kjölfar þúsaldar­kynslóðarinnar, hefur verið tengd við ýmis trend. Hún nálgast vinnu meira á eigin forsendum en fyrri kynslóðir, þar sem þær eldri státuðu af „vinnu­siðferði“ sínu. Hugtakið þögul uppsögn (e. quiet quitting) hefur verið tengd við hana, þar sem fólk ákveður að leggja fram sem minnst framlag ef tilgangurinn fyrir sjálfið er ekki þess ríkari. Sjálfið trompar skylduna. Kynslóðin er talin prag­matískari og efnishyggjusinnaðari en þúsaldar­kynslóðin. Um leið er hún prýdd metnaði og þjökuð meiri kvíða en fyrri kynslóðir, að minnsta kosti mældum.

Karlkynið af Z-kynslóðinni er tilbúið að taka við keflinu. Það er með tilkall. Í Banda­ríkjunum er ríflegur meirihluti karlkyns Z-kynslóðar­manna stuðnings­menn Donalds Trump. Þeir vilja fá að gera meira og vera meira, án þess að þurfa að lúta ytri lögmálum og hömlum. Z-kynslóðin er engir hippar í leit að heims­friði. Þau vilja frekar sigra heiminn.

Andi frumkvöðla

Í sigurlagi VÆB í ár, Róandi, svífur andi nýsköpunar, sjálfs­öryggis og taumlauss drif­krafts yfir vötnum. Gildismat Z-kynslóðarinnar er að hluta samgróið hugmynda­fræði nýsköpunarinnar. Mistök eru til þess að læra af, eða græða á. „Þetta reddast“ í þriðja veldi.

„Ég set spýtu ofan á spýtu og kalla það bát,“ syngur VÆB. „Ef ég sekk í dag er það ekkert mál.“ 

Einkennisorð kynslóðarinnar eru líklega „Let's go“ og á því hefst lagið. Maður verður að leggja af stað – og halda áfram. Viljinn yfir­stígur allt.

„Er sjórinn opnast koma öldurnar. Róandi hér, róandi þar. Róa í gegnum öldurnar,“ syngja VÆB.

Róður þeirra er ekki róður galeiðu­þræla í gömlu skrifstofu­vinnunni, heldur útrásar­víkinga. Það er ólíkt eldri kynslóðunum með lærða hjálpar­leysið, eða það raungerða, þar sem talað var um þungan róður.

Tími Væbsins

Orðið væb er dregið af enska orðinu „vibe“, sem þýðir „greinileg tilfinning eða sá eigin­leiki að geta verið skynjaður“. Með öðrum orðum, orð yfir það sem er af því að það virðist vera.

Við lifum á tímum væbsins, þar sem væbið hefur yfirtekið veru­leikann. Kannski framþróuð útgáfa heimsins af því sem heim­spekingurinn Baudrillard kallaði ofur-veruleika, þar sem tákn­heimur ekki aðeins yfir­skyggir heldur kemur í stað undir­liggjandi veru­leikans.

Ásýndin og skynjunin trompar allt. Það sem fólk trúir verður raun­veruleikinn. Forseti Banda­ríkjanna ræður sérfræðinga í framkomu í áhrifamestu embættin, svo sem þáttar­stjórnendur frá Fox News. Leið hans til sigurs var að halda því fram um heiminn sem heyrist best, ekki að segja satt eða virða tilvist annarra. 

Það sem áður var

Val okkar í Eurovision hefur gjarnan verið táknmynd sinnar samtíðar. Í fyrra sendum við næstum palestínskan fulltrúa fyrir okkar hönd, en enduðum aftur á Heru Björk eftir þjóðernis­bylgju. Hún hafnaði í síðasta sæti og féll út í undan­keppni en söng þrjú lög í úrslita­keppninni hér heima 15. febrúar síðastliðinn. VÆB er líka sokkið í veðbönkunum.

Árið 2019 sendum við Hatara með forspána „Hatrið mun sigra“, sem olli usla í Ísrael með því einu að sýna palestínskan fána. Nú hefur hryllingurinn sprengt skalann. Árið 2009, í miðjum eftirleik efnahags­hruns í kjölfar góðærisins, völdum við trega­fullt lag Jóhönnu Guðrúnar: Er það satt? Er það búið? 

„Það getur ekkert stoppað mig af“, er klifað undir lokin á framlagi Íslendinga til Evrópu þetta árið. Öll nytum við stundum góðs af því að bergja af þessum brunni blinds sjálfs­trausts, en þessi sjóferð er rétt að hefjast.

Kjósa
15
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár