Viðbúnaður í miðborginni vegna rafmagnsleysis og brunalyktar

Stór hluti mið­borg­ar­innar er raf­magns­laus.

Úr miðbænum rétt í þessu
Úr mið­bænum rétt í þessu Veg­far­endur og starfs­fólk fyr­ir­tækja hóp­að­ist saman til að fylgj­ast með atburða­rásinni.

Slökkvi­bílar, lög­reglu­bíll og sjúkra­bíll hafa leitað að upp­tökum raf­magns­leysis og hugs­an­legs bruna í mið­borg­inni nú fyrir kvöld­mat­ar­leytið. Talið er að bruna­lykt sem liggur yfir Póst­hús­stræti og Aust­ur­völl gæti tengst raf­magns­leys­inu. Raf­magns­laust varð í stórum hluta mið­borg­ar­innar og voru veit­inga­staðir, ásamt öðrum vinnu­stöðum, óstarf­hæfir.

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Veitum eru upp­tökin fundin og má rekja raf­magsns­leysið til háspennu­bil­unar í miðbæ Reykja­víkur. Unnið er að við­gerð og er von­ast til þess að raf­magn verði komið aftur á innan klukku­stundar, eða um klukkan sjö í kvöld. 

Eins er raf­magns­laust í Vest­ur­bænum, þótt raf­magns­leysið nái ekki til allra heldur aðeins sumra húsa. Það er til að mynda ekki raf­magns­laust í Þjóð­leik­hús­inu þótt veit­inga­staðir séu margir í vanda. 

Í leið­bein­ingum frá Veitum er fólki bent á að slökkva á raf­magns­tækjum sem slökkva ekki á sér sjálf og geta valdið tjóni þegar raf­magn kemur á að nýju, en það á sér­stak­lega við um sjón­vörp, elda­vélar, mín­útu­grill og fleiri hit­un­ar­tæki. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

5
Viðtal

Ef við kveðjum tungu­málið, þá týnum við vídd draumanna

Í sögu íslenskra bók­mennta í þús­und ár er lögð áhersla á raddir inn­flytj­enda, þá sem nú. Höf­und­ur­inn, Halldór Guð­munds­son, öðl­að­ist tveggja heima sýn ungur í Þýska­landi. Að læra lat­ínu frá 10 ára aldri lam­inn af kenn­ara sem skildi hann ekki, í sárum eftir heims­styrj­öld. Seinna spurði hann sig: „Hver má tala?" Í dag segir hann: „Íslend­inga­sögur dags­ins í dag eru að hluta til sagðar af fólki sem hingað hefur flutt."

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

3
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár