Fjölskyldan missti af vélinni til Íslands og er í felum í Kabúl

Hjón ásamt tveimur ungum börnum sínum sem ekki komust að flug­vélinni sem átti að flytja fjöl­skylduna frá Afganistan til Íslands í lok ágúst, nokkrum dögum eftir að Talíbanar tóku völdin í Kabúl, hafa að mestu verið í felum síðan. Konan segir í samtali við Stundina að hún hafi óttast um líf barna sinna í mann­mergðinni á flug­vellinum og þurft að taka ákvörðun upp á líf og dauða þennan dag. Hún er læknir sem bjó á Íslandi fyrir rúmum áratug og segir ástandið í Kabúl verra en orð fái lýst, örvæntingin sé alls­ráðandi.

Eftir að Talíbanar tóku völdin í Kabúl þann 15. ágúst síðastliðinn ákváðu íslensk stjórn­völd að bjóða um 120 afgönskum flótta­mönnum hæli hér á landi. Sérstök áhersla var lögð á að ná til fólks með tengsl við íslenskt samfélag en fyrirséð var að erfitt gæti verið að koma fólki frá Afganistan þar sem aðstæður væru erfiðar meðal annars á flug­vellinum í Kabúl. Þangað fór konan sem Stundin ræddi við ásamt eigin­manni sínum og börnum nokkrum dögum eftir að Talíbanar tóku völdin í Kabúl. „Ég var hrædd um að týna börnunum mínum í mann­fjöldanum á flug­vellinum. Ég var hrædd um að þau myndu detta og troðast undir. Við þurftum að taka erfiðar ákvarðanir og þær voru upp á líf og dauða,“ segir konan í samtali við Stundina. 

Bjó á Íslandi og er í hættu vegna jafnréttisbaráttu

Í samtalinu lýsir konan aðstæðum í Afganistan og tilraun til að flýja í skjól …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár