Kafteinn tunglskot vísar leiðina til framtíðar

Þegar hugmyndin að þessari grein kviknaði átti útgangs­punkturinn að vera að Google-fyrir­tækið ætlaði sér að breyta heiminum. Auðvitað leið ekki á löngu þar til ég áttaði mig á því að Google hefur nú þegar umbylt veröld okkar flestra. Sögnin að gúgla er komin með óopinberan þegnrétt í íslensku máli og vísar til þess að við getum hvar og hvenær sem er sótt okkur þekkingu og upplýsingar um næstum því hvað sem er. Það er ekkert smáræði þegar maður hugsar um að Google hefur aðeins verið til í tæp 16 ár.

Hvar byrjaði þetta allt saman?


Eins og flestir vita er kjarn­inn í Google-veld­inu leit­ar­vél fyr­ir­tæk­is­ins, sem var upp­haf­lega sett upp sem rann­sókn­ar­verk­efni af tveimur dokt­or­snemum í Stanford-háskól­anum, þeim Larry Page og Sergei Brin. Þeir stofn­uðu Google í sept­em­ber 1998 og var mark­miðið að skipu­leggja allar upp­lýs­ingar heims­ins og gera þær aðgengi­legri og gagn­legri. Slagorð þeirra var „Don´t be evil“ en tölvuris­inn Google, sem safnar miklum upp­lýs­ingum um not­endur sína, er að sjálf­sögðu ekki óum­deildur. Upp­haf­lega sner­ist allt um leit­ar­vél­ina en í gegnum tíð­ina hefur hlað­ist utan á vöru­fram­boð fyr­ir­tæk­is­ins með gríð­ar­lega hröðum og miklum vexti þess. Nú er mark­aðsvirði Google litlir 400 millj­arðar doll­ara og telst það vera næst­verð­mætasta fyr­ir­tæki Banda­ríkj­anna en keppi­naut­ur­inn Apple vermir efsta sætið. Þrátt fyrir mikið vöru­fram­boð kemur megnið af tekjum fyr­ir­tæk­is­ins enn frá aug­lýs­ingum á net­inu sem eru birtar í gegnum aug­lýs­inga­kerfið AdWords. Google vill því fjölga tekju­straumum sínum.


Hvað gerir þetta Google eiginlega?


Meðal ann­arra mik­il­vægra lausna Google eru skrif­stofu­hug­bún­aður fyrir fyr­ir­tæki og ein­stak­linga (Google Drive og Google Apps), Youtube-víd­eó­vef­ur­inn, blogg­þjón­ustan Blogger, gagna- og vef­hýs­ing, Chrome-vafr­inn, Chrome-stýri­kerfið fyrir far­tölvur, sam­fé­lags­netið Google+, korta­þjón­ustan Google Maps og Nexus-snjall­tæki. Android-stýri­kerfi Google hefur gegnt lyk­il­hlut­verki í að gera snjall­síma að almenn­ings­eign um heim allan. Talið er að snjall­síma­not­endur verði 1,75 millj­arðar á þessu ári og að lang­flestir þess­ara síma keyri á ýmsum útgáfum af Android-stýri­kerf­inu. Tólf gagna­ver Google um heim allan eru bak­beinið í þjón­ustu fyr­ir­tæk­is­ins.
Google er sem sagt leið­andi í leit­ar­tækni og aug­lýs­ingum á net­inu og stendur í harðri sam­keppni við Apple á snjall­tækja­mark­að­inum. Google berst einnig við Microsoft á sviði skrif­stofu­hug­bún­aðar á net­inu og við Amazon í að veita skýja­þjón­ustu hvers konar. Eins og rakið verður hér að neðan virð­ist Google vilja búa til val­kosti við snjall­síma eins og við þekkjum þá í dag, vera leið­andi í sam­göngu­tækni og róbótum og koma sterkt inn í heil­brigð­is­þjón­ustu.

Kafteinn Tunglskot vísar veginn


Mið­punkt­ur­inn í þessu starfi er leyni­leg rann­sókn­ar­mið­stöð sem kall­ast Google X. Henni stýra þeir Sergei Brin og vís­inda­mað­ur­inn, rit­höf­und­ur­inn og frum­kvöð­ull­inn Astro Teller. Sá síð­ar­nefndi er með hinn lát­lausa starfs­titil „Captain of Moonshots“, en hug­takið Moonshots vísar einmitt til áhættu­samra og fram­úr­stefnu­legra lausna á vanda­málum sem Google vill takast á við. Um 250 manns með fjöl­breyttan bak­grunn starfa hjá rann­sókn­ar­stöð­inni.

almennt_24_04_2014
almennt_24_04_2014

Þetta er brot úr ítarlegri umfjöllun Kjarnans um Google. Lestu hana í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár