Spenna vegna ákvörðunar OPEC-ríkja

Formlegur fundur OPEC-ríkjanna fer fram í næsta mánuði. Hann gæti orðið sögulegur.

Formlegur samráðs­fundur OPEC-ríkjanna fer fram 30. nóvember í Vín, og reikna fjár­festar á markaði með því að ríkin muni ná saman um að draga úr olíu­framleiðslu, sem muni síðan leiða til hækkunar olíuverðs á heims­markaði.

Olíuverð hefur tvöfaldast á hálfu ári, sé horft til verðs á tunnunni af hráolíu. Í febrúar síðastliðnum kostaði tunnan 26 Bandaríkja­dali, eftir hraða lækkun úr 110 Bandaríkja­dölum rúmlega ári fyrr, en nú kostar tunnan um 52 Bandaríkja­dali.

Áhrifa­mesta ríkið innan OPEC er Sádí-Arabía, en til samtaka tilheyra fjórtán olíu­framleiðslu­ríki. Auk Sádí-Arabíu eru það Alsír, Angóla, Ekvador, Gabon, Indónesía, Íran, Írak, Kúveit, Líbía, Katar, Nígería, Sameinuðu arabísku fursta­dæmin, og Venesúela. Saman standa ríkin undir meira en 33 prósent af heims­fram­leiðslunni. Olíu­framleiðslu­ríki eins og Brasilía, Banda­ríkin, Rússland og Noregur standa utan OPEC.

Haft var eftir Vladímir Pútín, Rúss­lands­forseta, í gær að Rússar myndu fylgja OPEC ef samstaða næst um að draga úr fram­leiðslu. Íran mun að líkindum frá undanþágu og fá að halda fullri fram­leiðslu, að því er Bloomberg greindi frá í gær.

Í Noregi hefur verið nokkur samdráttur í atvinnu­lífi, ekki síst í kringum Stavanger í Rogalandi, enda svæðið hjartað í olíu­iðnaði landsins. Höfuð­stöðvar Statoil eru í Stavanger og mörg þjónustu­fyrirtæki í olíu­iðnaði eru staðsett þar sömuleiðis. Um fimm þúsund Íslendingar eru búsettir á stór-Rogalandssvæðinu, af um tíu þúsund Íslendingum sem búa í Noregi.

Forvitnilegt verður að fylgjast með því hvort bensín­verð muni hækkað hér á landi á næstunni. Fylgjast má með þróun mála á bensín­vakt Kjarnans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár