Fundurinn með Braga lokaður

Fundur vel­ferð­ar­nefndar Alþingis með Braga Guð­brands­syni fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu verður lok­aður. Formaður nefnd­ar­innar fékk bréf frá lög­manni aðila sem málið snýst um í gær­kvöldi.

Fundur vel­ferð­ar­nefndar Alþingis með Braga Guð­brands­syni fyrr­ver­andi for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu verður lok­aður. Upp­haf­lega stóð til að um opinn fund yrði að ræða.

Í sam­tali við RÚV segir Halldóra Mogensen for­maður nefnd­ar­innar að í gær­kvöldi hafi hún fengið bréf frá lög­manni föður manns­ins sem Stundin fjall­aði um á föstu­dag. Í bréf­inu var áhyggjum af þessum opna fundi komið á fram­færi en að öðru leyti vildi Halldóra ekki fara nánar út í efni bréfs­ins.

Eftir nán­ari athugun og sam­ráð við nefnd­ar­svið Alþingis hafi hún tekið áhyggj­urnar til greina og ákveðið að hafa fund­inn lok­aðan til að koma í veg fyrir að menn gætu óvart brotið gegn trún­aði.

Í umfjöllun Stund­ar­innar kom fram að Bragi hafi beitt sér fyrir því að maður fengi að umgang­ast dætur sínar sem hann var grun­aður um kyn­ferð­is­brot gegn.

Bragi óskaði sjálfur eftir að fá að koma fyrir fund nefnd­ar­innar. Í yfir­lýs­ingu sem hann sendi frá sér kom fram að hann teldi sig geta varpað nýju ljósi á málið sem „koll­varpi þeirri mynd sem verið hefur uppi í umfjöllun Stund­ar­innar um málið og í kjöl­far hennar“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár