Þorsteinn: Ásmundur Einar hlýtur að opinbera gögnin

Fyrr­ver­andi ráð­herra vel­ferð­ar­mála kallar eftir því að nið­ur­stöður rann­sóknar vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins á störfum for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu verða gerðar opin­berar.

Þor­steinn Víglunds­son, þing­maður Við­reisnar og fyrr­ver­andi vel­ferð­ar­ráð­herra, segir á Facebook síðu sinni í dag, að Ásmundur Einar Daðason, núver­andi vel­ferð­ar­ráð­herra, hljóti að opin­bera nið­ur­stöðu á rann­sókn vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna kvart­ana barna­vernd­ar­nefnda höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins yfir störfum Braga Guð­brands­sonar, fyrrum for­stjórnar Barna­vernd­ar­stofu.

Síð­ast­lið­inn föstu­dag sam­þykkti rík­is­stjórnin að sækj­ast eftir sæti fyrir Íslands hönd í Barna­rétt­ar­nefnd Sam­ein­uðu þjóð­anna. Bragi Guð­brands­son verður full­trúi Íslands í kjöri til nefnd­ar­innar, en í henni sitja 18 sér­fræð­ingar og hafa þeir það hlut­verk að fylgj­ast með Barna­sátt­mála Sam­ein­uðu þjóð­anna.

Ásmundur Einar veitti Braga leyfi til eins árs frá starfi sínu sem for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu. „Staða Braga sem fram­bjóð­anda Íslands er talin sterk vegna ára­tuga reynslu hans af mála­flokknum og þátt­töku í alþjóð­legu sam­starfi á þessu sviði,“ segir í til­kynn­ingu frá ráðu­neyti Ásmundar Einars.

Í til­kynn­ing­unni er jafn­framt tekið fram, að sam­hliða und­ir­bún­ingi vegna fram­boðs síns muni Bragi sinna afmörk­uðum verk­efnum í vel­ferð­ar­ráðu­neyt­inu sem snúa að „til­teknum áherslu­málum ráð­herra í mál­efnum barna sam­kvæmt samn­ingi þar að lút­andi.“

Segir í til­kynn­ing­unni að þar sé einkum horft til þess að „tryggja börnum og fjöl­skyldum þeirra sem skjótasta íhlutun og stuðla að heild­stæðri nálgun og sam­fellu þjón­ust­unnar þannig að hún mæti sem best þörfum barna og fjöl­skyldna hverju sinni,“ segir í til­kynn­ing­unni.

Þor­steinn segir að í ljósi alvar­leika þess máls sem um ræðir, þá sé ekki hægt að fara leynt með nið­ur­stöðu rann­sóknar ráðu­neyt­is­ins. „Félags- og jafn­rétt­is­mála­ráð­herra, Ásmundur Einar Daðason, hlýtur að opin­bera nið­ur­stöðu á rann­sókn Vel­ferð­ar­ráðu­neyt­is­ins vegna kvart­ana barn­ar­vernd­ar­nefnda höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins yfir störfum fyrrum for­stjóra Barna­vernd­ar­stofu. Ráðherra hefur til­kynnt að for­stjóri Barna­vernd­ar­stofu láti af störfum en njóti stuðn­ings rík­is­stjórn­ar­innar í umsókn um starf á alþjóða­vett­vangi. Ekkert hefur verið látið uppi um nið­ur­stöður í athugun ráðu­neyt­is­ins. Umkvart­anir nefnd­anna voru fjöl­margar og alvar­legar. Þær snéru að óeðli­legum afskiptum for­stjór­ans fyrr­ver­andi af ein­stökum málum, sumum hverjum afar alvar­legum, og trún­að­ar­bresti sem komið hefði upp milli nefnd­anna og Barna­vernd­ar­stofu. Í ljósi alvar­leika máls­ins er ráð­herra vart stætt á því að fara leynt með nið­ur­stöðu athug­unar ráðu­neyt­is­ins. Stuðn­ingur ráð­herra og rík­is­stjórn­ar­innar við for­stjór­ann fyrr­ver­andi hlýtur að fela í sér stuðn­ings­yf­ir­lýs­ingu við þau vinnu­brögð sem undan var kvartað. Þeirri spurn­ingu er því ósvarað af hálfu ráð­herra hvernig end­ur­reisa eigi nauð­syn­legan trúnað milli Barna­vernd­ar­stofu og barna­vernd­ar­yf­ir­valda á höf­uð­borg­ar­svæð­inu,“ segir Þor­steinn á Facebook síðu sinni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár