Um tíu prósent rafmagns framleitt með vind- og sólarorku

Miklar breytingar eru að eiga sér stað í raforku­öflun heimsins. En þó að dregið hafi úr notkun kola í Evrópu hefur aukinni eftir­spurn á sama tíma verið mætt með meiri gasnotkun.

Vindorkuver í Belgíu.
Vind­orku­ver í Belgíu. Mynd: EPA

Tæplega tíundi hluti þess rafmagns sem framleitt er í heiminum í dag kemur úr vind- og sólarorku samkvæmt nýrri greiningu bresku hugveitunnar Ember. Í löndum Evrópu­sambandsins er hlut­fallið um 20 prósent. Það þýðir að í fyrsta sinn í sögu sambandsins er meira rafmagn framleitt með þessum orku­gjöfum en með jarðefna­eldsneyti, þ.e. kolum og olíu.

Sum lönd innan sambandsins eru stór­tækari í þessum efnum en önnur og í Danmörku, svo dæmi sé tekið, koma 63 prósent alls rafmagns frá vind- og sólar­orkuverum. Í Þýska­landi er hlut­fallið 33 prósent.

Dave Jones, forstöðu­maður Ember, segir að meirihluti ríkja heimsins séu að byggja upp sólar- og vind­orkuver. Stöðug og hröð þróun í þessa átt mun að hans sögn umbylta raforku­framleiðslu heimsins. Innan ESB hefur notkun á kolum til raforku­framleiðslu dregist saman um tæplega helming á aðeins fimm árum. Sú aðgerð ein og sér hefur dregið úr losun gróðurhúsa­lofttegunda innan sambandsins um 7 prósent.

Þegar staðan innan tuttugu stærstu iðnríkja heims er skoðuð (G20) þá er Kína eina landið sem jók notkun kola til rafmagns­framleiðslu í fyrra.

Þrátt fyrir þessi tíðindi er staðan, að sögn Jones, enn sú að losun gróðurhúsa­lofttegunda frá orku­framleiðslu á alþjóða­vísu var meiri í fyrra en árið 2015 er skrifað var undir Parísar­samkomu­lagið. Skýringin felst í aukinni eftir­spurn eftir raforku en hún hefur verið 11 prósent á síðustu fimm árum og hefur verið sérstak­lega mikil í Evrópu. Þar sem raforku­framleiðsla frá vistvænni orku­gjöfum hefur ekki haldið í við eftir­spurnina hefur henni verið mætt með jarðgasi og öðru jarð­eldsneyti. Sá áfangi Evrópu­sambandsins að draga verulega úr notkun á kolum byggir ekki síst á aukinni notkun á gasi.

Evrópu­sambandið hefur verið gagnrýnt fyrir að nota jarðgas í því millibils­ástandi orku­skipta sem nú eru að eiga sér stað. Orkumála­ráðherra framkvæmda­stjórnar þess hefur sagt að framtíðin sé þó vissulega ekki í jarðefna­eldsneyti og að árið 2050 verði raforku­kerfið allt annars eðlis en það er í álfunni í dag.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár