Kristján Þór: Illugi hefur veikst en hann á ekki að segja af sér embætti

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra segir að staða Illuga Gunn­ars­sonar, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra, hafi veikst vegna Orku Energy máls­ins. Illugi hefði lagt sín spil á borðið að und­an­förnu og útskýrt málið. Kristján er því ekki þeirrar skoð­unar að sam­ráð­herra hans í rík­is­stjórn eigi að segja af sér, en segir að Illugi hefði átt að skýra sína hlið mun fyrr. Þetta kom fram í við­tali við Kristján Þór í Morg­un­út­varpi Rásar 2 í morgun.

Illugi hefir legið undir ámæli vegna tengsla sinn við Hauk Harð­ar­son, stjórn­ar­for­mann fyr­ir­tæk­is­ins Orku Energy. Haukur réð Illugu sem ráð­gjafa fyr­ir­tækis síns á meðan að Illugi var í launa­lausu leyfi frá þing­störfum vegna rann­sóknar á pen­inga­mark­aðs­sjóði Glitnis, Sjóði 9, þar sem Illugi sat í stjórn fyrir banka­hrunið. Haukur keypti síðan íbúð Illuga af honum í fyrra­sumar og leigði honum hana síðan aftur. Illugi var þegar orð­inn ráð­herra þegar hann seldi íbúð­ina, en það gerði hann eftir að „nokkur fjár­hags­leg áföll“ höfðu dunið á honum.

Fjöl­miðar hafa ítrekað óskað frek­ari skýr­inga á ýmsum flötum máls­ins frá Illuga und­an­farna mán­uði, en án árang­urs. Hann tjáði sig loks um hluta máls­ins í við­tali við Frétta­blaðið á föstu­dag og við­ur­kenndi þá að það hefðu verið mis­tök að svara ekki fjöl­miðlum. Ekkert í mál­inu kalli hins vegar á afsögn hans sem ráð­herra eða þing­manns.

Síðar sama dag kom Illugi í við­tal í beinni útsend­ingu við frétta­stofu Stöðvar 2 til að útskýra meintar lán­veit­ingar Orku Energy til sín. Samkvæmt launa­seðl­inum var ekki um lán að ræða heldur fyr­ir­fram­greidd heild­ar­laun upp á 5,6 millj­ónir króna. Samtals nam fyr­ir­fram­greiðslan 2.950 þús­und krónum.

Þorbjörn Þórð­ar­son, frétta­mað­ur­inn sem tók við­talið við Illuga, birti launa­seð­il­inn á Twitter-síðu sinni síðar um kvöldið.


Launa­seð­ill Illuga Gunn­ars­sonar frá Orku Energy gef­inn út í febr­úar 2012. Launa­upp­gjör vegna vinnu á árinu 2011. pic.twitter.com/vvM5hIh4xJ


— Þorbjörn Þórð­ar­son (@thorbjornth) October 9, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár