„Grafalvarlegt“ hjá ritstjóra Fréttablaðsins segir Ögmundur

Þing­maðurinn gagnrýnir aðal­ritstjóra Frétta­blaðsins. Segir að fjöl­miðlar megi ekki misfara með vald sitt.

Gagnrýnir leiðara
Gagn­rýnir leið­ara Ögmundur Jónasson gagn­rýnir leið­ara Krist­ínar Þor­steins­sonar í grein í Frétta­blað­inu í dag og beinir þeim til­mælum til fjöl­miðla að þeir mis­fari ekki með vald sitt. Mynd: Pressphotos

„Í mínum huga er niðurlags­setningin í tilvitnuðum leiðara grafal­varleg í ljósi þess að ritstjórinn sem skrifar þessa herhvöt er jafnframt æðsti stjórn­andi allrar 365 fjölmiðla­samsteypunnar sem er í eigu málsaðila dómsmála sem undirbúin hafa verið hjá því embætti sem spjótum skal nú beint að,“ segir Ögmundur Jónasson, þingmaður Vinstri grænna, í aðsendri grein í Frétta­blaðinu í dag um leiðara sem Kristín Þorsteins­dóttir, aðal­ritstjóri 365, hefur skrifað í Frétta­blaðið um dómstóla og dómsmál vegna meintra efnahags­brota í aðdrag­anda efnahags­hrunsins.  

„Í mínum huga er niðurlags­setningin í tilvitnuðum leiðara grafal­varleg“

Grein Ögmundar ber yfir­skriftina „Ákall til fjölmiðla“ en í henni vísar hann sérstak­lega til niðurlags leiðara Kristínar og beinir þeim tilmælum til fjölmiðla að þeir misfari ekki með vald sitt. Niðurlag leiðara Kristínar var: „Sérstakur saksóknari gegnir mikilvægu embætti. Hann hefur örlög fjölda manna í höndum sér. Hvaða skoðun sem fólk hefur á persónum og leikendum getum við vonandi öll sammælst um að tilgangurinn helgar ekki alltaf meðalið þegar örlög fólks eru í húfi. Það er nauðsynlegt að upplýsa hvort sérstakur saksóknari laug þegar hann sagðist ekki hafa vitað um tengsl Sverris og Ólafs Ólafs­sonar. Niður­staða Hæstaréttar er óboðleg, og má ekki verða enda­hnútur þessa máls. Nú taka fjöl­miðlar við.“

Jón Ásgeir Jóhannesson
Jón Ásgeir Jóhannesson Eigin­maður aðal­eiganda 365, og fyrr­verandi aðal­eigandi félagsins, er fyrir dómi vegna meintra efnahags­brota. Á sama tíma skrifar aðal­ritstjóri blaðsins leiðara um að fjöl­miðlar eigi að taka á málefnum Hæstaréttar. Hér sést Jón Ásgeir með verjanda sínum, Gesti Jónssyni. Gestur er mágur aðal­ritstjóra Frétta­blaðsins.

Hagsmunatengsl eigenda 365

Í leiðara sínum 4. apríl síðastliðinn gerði Kristín vinnu­brögð Hæstaréttar og Sérstaks saksóknara að umtals­efni. Hún endaði leiðarann á ákalli til fjölmiðla um að taka á málefnum dóms­valdsins: „Niður­staða Hæstaréttar er óboðleg, og má ekki verða enda­hnútur þessa máls. Nú taka fjöl­miðlar við.“

„Niður­staða Hæstaréttar er óboðleg, og má ekki verða enda­hnútur þessa máls.“

Um þetta textabrot segir Ögmundur: „Í mínum huga er niðurlags­setningin í tilvitnuðum leiðara grafal­varleg í ljósi þess að ritstjórinn sem skrifar þessa herhvöt er jafnframt æðsti stjórn­andi allrar 365 fjölmiðla­samsteypunnar sem er í eigu málsaðila dómsmála sem undirbúin hafa verið hjá því embætti sem spjótum skal nú beint að.“ 

Síðasti hlutinn í þessu texta­broti Ögmundar vekur athygli í ljósi þess að málflutningur hófst í Aurum-málinu í Hæstarétti Íslands í gær en þar er Jón Ásgeir Jóhannesson, eigin­maður aðal­eiganda fjölmiðla­samsteypunnar 365, fyrir dómi. Héraðs­dómur Reykja­víkur sýknaði sakborningana í málinu en embætti sérstaks saksóknara áfrýjaði þeirri niður­stöðu til Hæstaréttar Íslands. 

Grein Ögmundar má lesa hér í heild sinni.

Greip inn í fréttaflutning

Kristín Þorsteins­dóttir var ráðin útgefandi 365 síðastliðið sumar. Síðasta haust tók hún einnig við stöðu aðal­ritstjóra 365. Ritstjórar Frétta­blaðsins, Mikael Torfason og Ólafur Stephensen, létu af störfum eftir gagnrýni á vinnu­brögð Kristínar. Fram kom að Kristín hefði gripið inn í frétta­flutning um samkeppnis­aðila 365, með því að fjarlægja frétt af Vísi.is sem tengdist sjónvarps­stöðinni iSTV til að koma í veg fyrir að hún hlyti kynningu.

Ólafur Stephensen skrifaði sinn síðasta leiðara í Frétta­blaðið um hættuna af áhrifa­valdi eigenda á fjölmiðla­umfjallanir: „Siða­reglur fjölmiðla skipta litlu sem engu máli ef vilji eigenda stendur ekki til þess í raun að starf­rækja sjálf­stæða miðla, þar sem ritstjórnin lýtur ekki eigenda­valdi.“

„Siða­reglur fjölmiðla skipta litlu sem engu máli“

Kristín Þorsteinsdóttir
Kristín Þorsteins­dóttir Áður en Kristín Þorsteins­dóttir, fyrr­verandi upplýsinga­fulltrúi Baugs, var ráðin útgefandi og aðal­ritstjóri 365, hafði hún skrifað harðar greinar gegn rann­sóknum á meintum efnahags­brotum í aðdrag­anda hrunsins. Eitt viðfangs­efni slíkra rannsókna er fyrr­verandi aðal­eigandi og eigin­maður núverandi aðal­eiganda 365.

Áður en Kristín var ráðin ritstjóri og útgefandi hafði hún vakið athygli fyrir gagnrýni sína á rann­sóknir á meintum brotum banka­manna og auðmanna í aðdrag­anda efnahags­hrunsins. Þar sakaði hún Sérstakan saksóknara og dómstóla um fúsk og varaði við yfir­vofandi „réttar­morðum“ í dóms­málunum. 

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár