Heldur áfram að hnýta í dómnefndina: „Í nefndinni var nú hjúkrunarfræðingur líka“

Ráðherra staldraði við að rætt væri um „hóp sérfræðinga“, furðaði sig á Excel-skjali og sagði tveggja blaðsíðna bréf sitt hafa að geyma ítarlegri samanburð en 117 blaðsíðna umsögn dómnefndar.

Sigríður Andersen dómsmála­ráðherra vakti sérstaka athygli á því að einn af nefndar­mönnum dómnefndar sem mat hæfni umsækjenda um dómara­embætti við Landsrétt væri menntaður hjúkrunar­fræðingur á opnum fundi stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar í morgun.

„Í hæfnis­nefndinni var nú hjúkrunar­fræðingur líka, ég veit ekki hvort það kallist sérfræði­þekking á þessu sviði sko,“ sagði ráðherra eftir að Helga Vala Helga­dóttir, formaður þing­nefndarinnar, hafði vísað til dómnefndarinnar sem hóps sérfræðinga.

Í dómnefndinni sátu – á grund­velli tilnefninga í samræmi við lög um dómstóla – þau Gunnlaugur Claessen hæstaréttar­dómari, Guðrún Björk Bjarna­dóttir héraðsdóms­lögmaður, Valtýr Sigurðsson, hæstaréttar­lögmaður og fyrr­verandi ríkis­saksóknari, Ingibjörg Pálma­dóttir, fyrr­verandi ráðherra og hjúkrunar­fræðingur, og Halldór Halldórsson, dómstjóri héraðs­dóms Norður­lands vestra.

Sigríður Andersen gagnrýndi vinnu­brögð nefndarinnar, einkum Excel-skjal sem hún studdist við í vinnu sinni. Sagðist hún hafa verið „mjög hugsi yfir þessu Excel-skjali“ og þeirri niður­stöðu dómnefndar að akkúrat 15 einstaklingar teldust hæfastir til að gegna embætti dómara við Landsrétt.

„Ég skynja það að það hafi fram mjög hlutlægt mat á umsækjendum. Ég spurði hvort að þetta væri heppilegasti mæli­kvarðinn á hæfi umsækjenda sem er með svona rosalega hlutlægum hætti,“ sagði ráðherra.

Fullyrðir að tveggja blaðsíðna rökstuðningur sinn sé
ítarlegri en 62 blaðsíðna samanburður dómnefndar

Ráðherra ítrekaði jafnframt þá skoðun sem hún setti fram í viðtali sem birtist í frétta­skýringa­þættinum Kveik í gærkvöldi. Í viðtalinu við Kveik sagði hún:  „Í rauninni rökstyð ég nú kannski mína niður­stöðu örlítið ítarlegar heldur en hæfis­nefndin rökstuddi umsögn sína. Af umsögninni sjálfri er ekki hægt að ráða neinn samanburð á einstaklingum.“

Hið rétta er að í umsögn dómnefndarinnar er að finna 62 blaðsíðna umfjöllun með ítarlegum saman­burði á hæfni umsækjenda á ýmsum sviðum.

Engan slíkan samanburð er að finna í rökstuðningi sem fylgdi tillögu dómsmála­ráðherra um dómara­efni til Alþingis, enda er sá rökstuðningur aðeins tvær blaðsíður að lengd og hefur ekki að geyma efnislega umfjöllun um hæfni hvers og eins umsækjanda, hvað þá ítarlegan samanburð á hæfni þeirra sem sóttu um dómara­embætti.

Vakti athygli á að hjúkrunarfræðingur væri í nefndinni

Þegar Helga Vala Helga­dóttir, formaður stjórn­skipunar- og eftirlits­nefndar, vísaði til dómnefndarinnar sem hóps sérfræðinga gerði ráðherra athugasemd við orðalagið og tók fram að einn af nefndar­mönnun væri hjúkrunar­fræðingur. „Þannig að nefndin er skipuð ýmsum aðilum sem er ágætt held ég en þannig að menn hafi það á hreinu þá er sérfræði­þekkingin af ýmsum toga.“ 

„Í hæfnis­nefndinni var nú hjúkrunar­fræðingur líka, ég veit ekki hvort það kallist
sérfræði­þekking á þessu sviði sko“

Með þessum orðum vísar ráherra til Ingibjargar Pálma­dóttur, sem var tilnefnd af Alþingi sem varamaður í dómnefndinni sem fjallaði um hæfni umsækjenda um dómara­stöður. Hún kom inn vegna þess að Ragnhildur Helga­dóttir, aðal­maðurinn sem Alþingi tilnefndi, hafði lýst sig vanhæfa í málinu.

Ingibjörg er með hjúkrunar­fræði­próf frá Hjúkrunar­skóla Íslands frá 1970 og starfaði sem hjúkrunar­fræðingur við Sjúkrahús Akraness um 18 ára skeið. Hún sat svo á Alþingi frá 1991 til 2001, var meðal annars nefndar­maður í heil­brigðis- og trygginga­nefnd, félagsmála­nefnd og sjávar­útvegs­nefnd og gegndi svo embætti heil­brigðis- og trygginga­mála­ráðherra frá 1995 til 2001.

Ingibjörg hefur einnig setið í bæjar­stjórn Akraness, verið forseti bæjar­stjórnar og setið í stjórnar­nefnd um málefni fatlaðra, í stjórn Sambands íslenskra sveitar­félaga og stjórn framkvæmda­nefndar atvinnu­mála á Akranesi.

Hugsunin á bak við tilnefningar Alþingis í dómnefndina er að þar sitji fulltrúi almennings, tilnefndur af löggjafar­þinginu sem sækir umboð sitt til lands­manna í kosningum. Guðlaugur Þór Þórðarson, utan­ríkis­ráðherra og flokks­félagi Sigríðar Andersen sem gegndi hlutverki setts dómsmála­ráðherra við skipun átta héraðs­dómara nú í byrjun árs, hefur lagt sérstaka áherslu á að í dómnefndinni sitji fulltrúar almennings, „leikmenn en ekki löglærðir, sambærilegt því sem gerist í Danmörku“.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár