Risaskjálfti skekur Mexíkóborg

Stór jarða­skjálfti varð í Mexíborg í kvöld. Skjálftinn reið yfir þegar æfingar vegna jarð­skjálfta­hættu stóðu yfir.

Á 32 ára afmæli skjálftans mikla í Mexíborg, sem var upp á 8 á Richter-kvarða og olli gífurlegri eyði­leggingu og manntjóni, reið jarð­skjálfti upp á 7,1 yfir borgina í dag.

Í skjálftanum árið 1985 létust yfir 5 þúsund manns, en samkvæmt frásögnum af vettvangi nú þá er fjöldi fólks fastur undir braki og byggingum sem hafa hrunið að hluta eða öllu leyti.

Æfingar á viðbrögðum við jarð­skjálftum stóðu yfir í borginni þegar skjálftinn varð, nú undir kvöld, en yfirvöld í Mexíkó höfðu varað við því að mikil spenna væri á mælum sem benti til þess að jarð­skjálftar gætu mögulega komið fram á næstu dögum eða vikum.

Að minnsta kosti 42 eru látnir, en hjálpar­starf stendur nú yfir víða um borgina, samkvæmt fréttum breska ríkis­útvarpsins BBC.

Upptök skjálftans eru sjö kílómetra vestur af bænum Chiautla de Tapia í Pueblaríki, í nágrenni Mexíkó­borgar. Íbúar í borginni eru 8,8 milljónir.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár