Bankar á Wall Street dæla peningum í indversk fasteignafélög

Fjárfestingabarnkar og sjóðir í Banda­ríkjunum, þar á meðal Goldman Sachs og Blackstone, hafa að undförnu dælt peningum í indversk fasteigna­félög sem byggja nú hratt upp íbúðir og atvinnu­húsnæði á þéttbýlum svæðum.

Hagkerfi Indlands hefur vaxið hratt undan­farin ár, og tekið miklum innri breytingum á sama tíma. Milli­stétt vex um 20 til 30 milljónir manna á hverju ári, eða sem nemur svipuðum fjölda og býr á Norður­löndunum. Heildar­íbúafjöldi Indlands er ríflega 1,2 milljarður manna og er landið það næst fjölmennasta á eftir Kína, sem er með 1,4 milljarða manna.

Stór­fyrirtæki í Banda­ríkjunum veðja á að eftir­spurn eftir húsnæði muni aukast mikið og hratt á næstunni, og fasteigna­verð hækka mikið.

Samkvæmt umfjöllun Quartz hefur Goldman Sachs bankinn sett tæplega einn milljarð Bandaríkja­dala í fasteigna­verkefni í Indlandi að undan­förnu, þrátt fyrir að ákveðin óvissa hafi skapast á vissum svæðum þar sem markaðir hafa einkennst af offjárfestingu.


Why Wall Street is pouring millions into India’s real estate sector http://t.co/qitfwPWVK2 pic.twitter.com/FJf6EwQdCs


— Quartz India (@qzindia) September 23, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár