Bókahúsið iðar af lífi

Fimmti þáttur hlað­varpsins Bókahúsið er kominn út en í honum ræðir Sverrir Norland við Eirík Bergmann stjórnmála­fræðing um nýútkomna bók hans Þjóðar­ávarpið. Þá er rætt við Margréti Tryggva­dóttur rithöfund og Lindu Ólafs­dóttur teiknara um þeirra samstarf.

Gestir Sverris Norland í fimmta þætti af Bóka­húsinu eru Eiríkur Bergmann, sem ræddi nýja bók sína Þjóðar­ávarpið í fróðlegu spjalli sem snerti á þjóðernis­hugmyndum, popúlisma, upplýsinga­óreiðu og ótal öðru.

Linda Ólafs­dóttir teiknari og Margrét Tryggva­dóttir rithöfundur voru einnig gestir hlað­varpsins en þær sendu nýlega frá sér hið fallega samvinnu­verkefni Reykjavík barnanna auk þess sem Margrét gaf fyrr á árinu út verðlauna­bókina Sterk.

Þá ræðir Elín Edda Páls­dóttir, verkefna­stjóri hjá Forlaginu, við Sverri um þau fjölmörgu horn sem hún hefur í að líta á kontórnum, m.a. um þau sjónarmið sem ráða för þegar velja á erlendar bækur til útgáfu.

Bókahúsið er aðgengilegt á helstu hlaðvarps­veitum en einnig má nálgast alla þættina á vef Forlagsins.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár