Ummæli Bjarna um mál Jóhönnu standast ekki skoðun

Forsætis­ráðherra fullyrti nýlega að Jóhanna Sigurðar­dóttir hefði hvorki viðurkennt bindandi gildi úrskurðar kæru­nefndar um jafn­rétt­ismál né leitað sátta við kæranda eftir að kærunefnd jafnréttis­mála taldi hana hafa brotið jafn­rétt­islög. Hvorugt stenst skoðun. Jóhanna segir forsætis­ráðherra beita „röngum og villandi upplýsingum í mátt­lausri vörn fyrir eigin gjörðir“.

Bjarni Benediktsson forsætis­ráðherra fór með rangt mál í gagnrýni sinni á Jóhönnu Sigurðar­dóttur, fyrr­verandi forsætis­ráðherra, þegar brot þeirra beggja á jafnréttis­lögum komust í hámæli í byrjun mánaðar. 

Bjarni sagði að Jóhanna hefði ekki viljað „viðurkenna bindandi gildi úrskurðar kæru­nefndarinnar“ á sínum tíma og að hún hefði hvorki reynt að hnekkja úrskurði kæru­nefndar fyrir dómstólum né leitað sátta við þann sem á var brotið.

Hvorug full­yrðing Bjarna stenst skoðun. Hið rétta er að Jóhanna lýsti því yfir á Alþingi á sínum tíma að hún teldi úrskurðinn bindandi. Deilt var um þýðingu þess að úrskurðurinn hefði bindandi gildi þegar málið kom til kasta Héraðs­dóms Reykja­víkur. Þá liggur fyrir að ráðuneytið leitaði sátta og bauð kæranda miska­bætur í kjölfar úrskurðar kæru­nefndar. 

Jóhanna Sigurðar­dóttir tjáir sig um málflutning Bjarna á Facebook og segist finna sig knúna til að svara ítrekuðum rang­færslum forsætis­ráðherra. „Bjarni hefur reynt að drepa málinu á dreif og, það sem verst er, beitt röngum og villandi upplýsingum í mátt­lausri vörn fyrir eigin gjörðir,“ skrifar hún. 

Vildi að Jóhanna segði af sér og braut svo sjálfur jafnréttislög

Kærunefnd jafnréttis­mála komst nýlega að þeirri niður­stöðu að Bjarni Bene­dikts­son hefði brotið jafn­rétt­is­lög í starfi sínu sem fjár­mála­ráðherra þegar hann skipaði karl­mann en ekki konu í embætti skrif­stofu­stjóra skrif­stofu op­in­berra fjár­mála þann 31. ág­úst í fyrra.

Bent hefur verið á að þegar kærunefnd jafnréttis­mála taldi Jóhönnu Sigurðar­dóttur, þáverandi forsætis­ráðherra, hafa brotið jafnréttislög árið 2011 spurði Bjarni Benediktsson hana ítrekað hvort hún teldi ekki tilefni til afsagnar.

Í tilviki Jóhönnu hafði karl verið metinn hæfastur en konan sem kærði var í fimmta sæti samkvæmt hæfnis­mati. Í tilviki Bjarna voru hins vegar kona og karl metin jafnhæf og karlinn samt ráðinn, þvert á reglur jafnréttis­laga.

Jóhanna fjallaði um málið á Facebook og spurði: „Jæja, Bjarni, hvað ætlar þú nú að gera þegar Kærunefnd jafnréttis­mála hefur úrskurðað að þú hafir brotið jafnréttislög?“ 

Bjarni brást við með ítarlegri stöðu­uppfærslu á Facebook:

Rangt að Jóhanna hafi ekki
viðurkennt bindandi gildi úrskurðarins 

Kjarninn í færslu Bjarna er sá að Jóhanna hafi sjálf mælt fyrir frumvarpi til laga um að úrskurðir kæru­nefndar jafnréttis­mála yrðu bindandi á sínum tíma en ekki viljað viðurkenna bindandi gildi úrskurðar kæru­nefndar um eigin brot á jafnréttis­lögum.

„Jóhanna, þá sem forsætis­ráðherra, vildi ekki viðurkenna bindandi gildi úrskurðar kæru­nefndarinnar, að því er virðist eingöngu vegna þess að niður­staðan var henni ekki að skapi,“ skrifar Bjarni.

Hið rétta er að Jóhanna viðurkenndi bindandi gildi úrskurðar kæru­nefndarinnar, meðal annars í þingræðu þann 31. mars 2011 þar sem hún sagði „alveg rétt að úrskurður kæru­nefndar er bindandi nema málið fari fyrir dómstóla.“ Eftir því sem Stundin kemst næst þrætti Jóhanna aldrei fyrir að úrskurðurinn væri bindandi.

Deilt var um þýðingu þess að úrskurðurinn væri bindandi og túlkun laga­ákvæðis þess efnis þegar málið kom til kasta Héraðs­dóms Reykja­víkur. Í dóminum kemur fram að með bréfi, dagsettu 4. maí 2011, hafi forsætis­ráðuneytið tilkynnt kærunefnd jafnréttis­mála að „ráðuneytið teldi erfitt að festa hönd á það með hvaða hætti úrskurður kæru­nefndar jafnréttis­mála í málinu væri bindandi að lögum“. Þá kom fram að jafnframt teldi „ráðuneytið að úrskurðurinn hefði ekki þau áhrif að til bóta­réttar stefnanda hefði stofnast“.

Héraðs­dómur tók undir það mat ráðuneytisins að úrskurðurinn um brot á jafnréttis­lögum hefði ekki stofnað til bóta­réttar gagnvart kæranda. Síðar vakti umboðs­maður Alþingis athygli Alþingis á þeirri óvissu sem ríkti um þýðingu þess að úrskurðir kæru­nefndar jafnréttis­mála væru bindandi. 

Ríkislögmaður taldi að túlka ætti ákvæði
um „bindandi gildi“ úrskurðarins þröngt

Þegar deilt var um þýðingu þess að úrskurðurinn væri bindandi fyrir Héraðs­dómi Reykja­víkur hélt ríkis­lögmaður, Einar Karl Hallvarðsson, því fram að úrskurður kæru­nefndarinnar gæti ekki talist bindandi á þann hátt að þegar væru skilyrði til að taka kröfur stefnanda um miska­bætur að einhverju eða öllu leyti til greina. 

„Í fyrsta lagi telji stefndi að dómstólar séu ekki bundnir af úrskurði kæru­nefndarinnar um hvort brotið hafi verið gegn lögum nr. 10/2008, enda sé sakarefni um það ekki undan­skilið úrlausnar­valdi dómstóla í lögunum, sbr. 60. gr. stjórnar­skrár lýðveldisins Íslands nr. 33/1944. Í ljósi þess ákvæðis stjórnar­skrár beri að túlka ákvæði laga nr. 10/2008 um bindandi gildi úrskurðarins þröngt,“ segir í dóminum.

Niður­staða Héraðs­dóms var sú að í ljósi þess að íslenska ríkið hefði ekki borið úrskurð kæru­nefndar jafnréttis­mála undir dómstóla innan þess máls­höfðunar­frests sem gefinn var yrði talið að úrskurðinn hafi orðið bindandi fyrir aðila málsins. „Verður því lagt til grund­vallar í málinu að við skipun í embætti skrif­stofustjóra á skrif­stofu stjórn­sýslu- og samfélags­þróunar í forsætis­ráðuneytinu hafi forsætis­ráðherra brotið gegn ákvæðum laga nr. 10/2008 um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla.“

Einnig ósatt að ekki hafi verið leitað sátta við kæranda

Í gagnrýni sinni á Jóhönnu Sigurðar­dóttur skrifar Bjarni Benediktsson einnig: „Bindandi gildi úrskurðar hefur þá þýðingu að í máli Jóhönnu átti ráðuneytið fyrst og fremst tvo valkosti. Annað hvort að eiga frumkvæði að því að hnekkja úrskurðinum fyrir dómstólum eða eftir atvikum að leita sátta við þann sem taldi á sér brotið. En hvort gerði Jóhanna? Svarið er hvorugt.“

Hið rétta er að eftir að kærunefnd jafnréttis­mála kvað upp úrskurð sinn fór forsætis­ráðuneytið yfir málið með ríkis­lögmanni og bauð kæranda til fundar í ráðuneytinu. Jóhanna greinir frá því á Facebook-síðu sinni að ríkis­lögmaður hafi reynt, fyrir hönd forsætis­ráðuneytisins, að leita sátta en það hafi ekki tekist. „Forsætis­ráðuneytið bauð 500 þúsund krónur en því var hafnað,“ skrifar Jóhanna. 

Ummæli Jóhönnu eru í samræmi við frásögn sem kemur fram í dómi Héraðs­dóms Reykja­víkur. Þar segir meðal annars:

„Ríkis­lögmaður sendi stefnanda bréf 9. maí 2011 en í því var upplýst að til skoðunar væri hjá forsætis­ráðuneytinu hvort skjóta bæri úrskurði kæru­nefndarinnar til dómstóla. Jafnframt var stefnanda boðið til viðræðna um greiðslu miskabóta. Stefnandi svaraði bréfinu 26. maí sama ár með boði um að ljúka málinu með greiðslu fébóta og miskabóta. Með bréfi 16. júní 2011 ítrekaði stefndi boð sitt um miska­bætur. Stefnandi hafnaði boði stefnda og hefur höfðað mál þetta til innheimtu bóta.“ 

Viðbrögð Jóhönnu við gagnrýni Bjarna Benedikts­sonar má sjá í heild hér að neðan: 

Stundin hefur áður fjallað um ósannindi Bjarna Benedikts­sonar forsætis­ráðherra, sjá ítarlega umfjöllun sem birtist á vefnum þann 11. mars síðastliðinn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.
Tengdar greinar

ACD-ríkisstjórnin

Fréttir

Unnu náið með hæsta­réttar­dómurunum meðan þeir dæmdu Arn­fríðar­mál

Arnfríður Einars­dóttir landsréttar­dómari starfaði sjálf sem vara­dómari með tveimur þeirra hæstaréttar­dómara sem tóku afstöðu um hæfi hennar og bærni til að kveða upp dóma á sama tíma og málið var til meðferðar. Hinir þrír sem valdir voru í Landsrétt í trássi við stjórn­sýslulög störfuðu einnig náið með hæstaréttar­dómurunum meðan Hæstiréttur tók fyrir mál sem hefði getað sett dómara­störf fjór­menninganna í uppnám.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár