Sunny Sweetness ákærð fyrir líflátshótun gegn framkvæmdastjóra barnaverndar

Sunna Guðrún Eaton, sem vakti mikla athygli í upphafi árs, hefur verið ákærð fyrir lífláts­hótun í garð framkvæmda­stjóra Barna­verndar. Hún hefur auk þess verið ákærð fyrir ærumeiðandi aðdróttanir í hennar garð og heldur fram alvarlegum aðdróttunum í nýlegu myndbandi.

Sunny Sweetness
Sunny Sweetness Sunna Guðrún Eaton hefur verið ákærð af Rík­is­sak­sókn­ara. Mynd: YouTube

Sunna Guðrún Eaton, sem vakti mikla athygli fyrr á þessu ári vegna myndbands þar sem hún gagnrýnir íslenska femínista, hefur verið ákærð af Ríkis­saksóknara fyrir lífláts­hótanir í garð framkvæmda­stjóra Barna­verndar Reykja­víkur, Halldóru Drafnar Gunnars­dóttur. Hún er ákærð fyrir brot gegn vald­stjórn og ærumeiðandi aðdróttanir gegn Halldóru.

Myndband Sunnu, sem kallar sig Sunny Sweetness, „feminists in Iceland“ fór eins og eldur í sinu um samfélags­miðla í upphafi árs. Sunnar tjáir sig um Barna­vernd Reykja­víkur ítrekað í nýlegum mynd­böndum og telur hún sig ofsótta af stofnuninni. Í þessu sama myndbandi ræðst hún á Halldóru Dröfn. Sunna kaus að tjá sig ekki málið þegar Stundin sóttist eftir viðbrögðum hennar.  

Hótaði að pynta starfsmanninn

Um er að ræða þrjú mismun­andi atvik sem Sunna Guðrún er ákærð fyrir. Samkvæmt ákæru á Sunna að hafa hótað Halldóru ofbeldi og lífláti sumarið 2012 ef hún hefði afskipti af sínum málum. Í ákæru kemur fram að annar starfs­maður Barna­verndar var viðstaddur þegar sú hótun fór fram. Seinna atvikið var 8. febrúar árið 2013 en þá er Sunna sögð hafa hótað Halldóru ofbeldi og lífláti á ný í símtali við annan starfs­mann Barna­verndar Reykja­víkur. Sunna er sögð hafa lýst því yfir að Halldóra væri „erkióvinur sinn og fórnar­lamb sitt og kvaðst ætla pynta Halldóru Dröfn þangað til hún deyi.“ Þriðja atvikið var svo 12. apríl árið 2013 en samkvæmt ákæru sendi Sunna tvö sms skeyti á Halldóru úr farsíma­númeri sínu þann dag. Samkvæmt ákæru var efni skeytanna stutt: „Barna­ræningi“ annars vegar og „Skíta­mella“ hins vegar.

Fékk kvíðahnút að sjá bréf frá Reykjavíkurborg

Þann 28. apríl birti Sunna Guðrún myndband á Youtube sem ber heitið „Child protective services in Reykjavik“, þar sem hún bæði gagnrýnir Barna­vernd Reykja­víkur og segir sína hlið á málinu. „Ég var alltaf svo hrædd við að fara í póst­kassann minn og sjá bréf frá Reykja­víkurborg. Ég þekki margar mæður sem eru hræddar við að fara í póst­kassann sinn því þær eru hræddar um að einhver hafi tilkynnt þær til Barna­verndar. Ég skal segja ykkur það, í Skandinavíu tilkynnir fólk mann ef maður segir haltu kjafti eða hækkar róminn við barnið,“ segir Sunna meðal annars í mynd­bandinu.

„... í Skandinavíu tilkynnir fólk mann ef maður segir haltu kjafti eða hækkar róminn við barnið“

Hún segist alltaf hafa áhyggjur af því að lenda upp á kant við einhvern myndi viðkomandi tilkynna sig til Barna­verndar. „Ég hlakka til að fara í póst­kassann minn til að sjá hvaða hálfviti hefur tilkynnt mig vegna einhvers. Það er fokking gaman. Ég verð spennt. Ég fæ ekki lengur kvíðahnút í magann þegar ég sé bréf frá Reykja­víkurborg. Ég vil sjá núna hvað fólk er að segja um mig. Ég hef ekkert að gera svo það veitir mér spennu,“ segir Sunna síðar í sama myndbandi.

Lýsir atvikinu

Um mitt myndband lýsir Sunna raunar hennar hlið á málinu sem hún hefur nú verið ákærð fyrir. „Þau tóku börn vegna þess að ég fékk flog og var í uppnámi. Ég braut eitthvað og öskraði. Þau létu handtaka mig, fyrsta skipti sem ég hef verið handtekin og sett í fanga­klefa í nokkra klukku­tíma. Þegar ég kom út höfðu þeir farið í leik­skólann og tekið börnin,“ segir Sunna. Því næst ræðst hún á Halldóru Dröfn, framkvæmda­stjóra Barna­verndar Reykja­víkur, og birtir mynd af henni. Hún segir Halldóru Dröfn stýra glæpa­samtökum sem kalli sig Barna­vernd Reykja­víkur.

Viðurkennir sök í Youtube-myndbandi

 „Á Íslandi, ef þú sýnir einhvers konar ósamvinnuþýði eða tilfinningar vegna þess sem Barna­vernd geri manni, ef maður sýnir þeim reiði þá segja þeir að maður sé ekki í tilfinninga­legu jafnvægi,“ segir Sunna. Hún dregur því næst upp bréf frá Ríkis­saksóknara og ræðir ákæruna. „Ég hef sagt henni hvað mér finnst um hennar illvirki, ég hef ekkert gott um hana að segja [...] Ég kannast ekki við að hafa hótað henni, en ég veit að ég hef sagt henni hvað mér finnst um hana,“ segir Sunna. Hún stendur við orð sín um að hún telur Halldóru vera „barna­ræninga“ en kannast ekki við að hafa skrifað „skíta­mella“ í sms-skeyti.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár