Gawker á leið í gjaldþrot vegna greiðslu til Hulk Hogan

Fjöl­bragðaglímu­kappinn Hulk Hogan fékk dæmdar 140 milljónir Bandaríkja­dala frá fyrir­tækinu Gawker Media vegna kynlífs­myndbands sem komst í umferð.

Fjöl­bragðaglímu­kappinn og leikarinn Hulk Hogan er búinn að setja fjölmiðla­fyrirtækið Gawker Media í gjaldþrota­meðferð. Hann sigraði skaða­bótamál gegn fyrir­tækinu vegna kynlífs­myndbands af honum og unnustu félaga hans, sem komst í umferð með umfjöllun á vef í eigu Gawker hinn 4. október 2012.

Dómstóll í Florída ríki dæmdi Hogan 140 milljónir Bandaríkja­dala í bætur, eða sem nemur um 18 milljörðum króna, vegna brota gegn friðhelgi einkalífs hans. Forsvars­menn fyrir­tækisins hafa brugðist við þessu með því að auglýsa eftir tilboðum í fyrir­tækið. Gawker sinnir útgáfu­starfsemi, einkum á netinu, en hefur einnig gefið út tímarit sem fjalla um dægur­málefni og slúður. Starfs­menn hafa mest verið í kringum 700 talsins, en hefur farið fækkandi að undan­förnu, enda reksturinn í uppnámi.

Fjár­festirinn Peter Thiel, sem þekkur er fyrir sprota­fjár­festingar og nýsköpunar­starf, er einn þeirra sem sótt hefur að Gawker, vegna umfjöllunar um hann sem hann segir hafa verið meiðandi og átt meira skylt við einelti en málefna­lega umfjöllun. Hann er sagður vilja knésetja fyrir­tækið, og samkvæmt umfjöllun New York Times, er hann einn þeirra sem hefur sýnt áhuga á að kaupa það, jafnvel með það í huga að leggja það niður.

Nick Denton, stofnandi Gawker Media, sagði á Twitter síðu sinni að Thiel myndi ekki ná að þagga niður í Gawker. Fyrir­tækið myndi starfa áfram, þó eigendur verði aðrir. Hann sagði frjálsa fjöl­miðlun eiga undir högg að sækja, ef frægir einstaklingar gætu þaggað niður í fjöl­miðlun með málsóknum og peningum.

Dómurinn sem féll Hogan í vil kom mörgum á óvart, enda upphæðirnar sem hann fékk í bætur svimandi háar, og fá dæmi um að víðlíka fjárhæðir í dómum þar sem friðhelgi einka­lífsins er til umfjöllunar. Denton sagði niður­stöðuna vera „ótrúlega“ og „óskiljanlega“, og að réttlætið myndi sigra að lokum. Síðan þá hefur Gawker fari í gjaldþrota­meðferð, þar sem það gat ekki greitt Hogan bætur, og leitar nýrra eigenda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár