Risaviðskipti á fjölmiðlamarkaði - Altice kaupir Cablevison

Hollenski fjölmiðla- og kapal­risinn Altice hefur keypt Cablevision í Banda­ríkjunum fyrir 17,7 milljarða Bandaríkjdala, eða sem nemur um 2.300 milljörðum króna, en inn í kaup­verðinu er yfirtaka á skuldum félagsins. Þetta eru með umfangsmestu viðskiptum í fjölmiðla­rekstri í Banda­ríkjunum á undan­förnum fimm árum.

Cablevision er fimmta stærsta fyrirtæki sinnar tegundar og er helsta markaðs­svæði fyrir­tækisins New York borg og nágrenni þess. Fyrir­tækið býður kapal­kerfi fyrir sjónvarp, en mikil hagræðing hefur að undan­förnu átt sér stað á þessum markaði, og hefur Altice sótt stíft inn á Bandaríkja­markað, samkvæmt umfjöllun CNBC. Í maí síðastliðnum keypti fyrirtæki Suddenlink, og reyndi einnig að kaup Time Warner Cable, dóttur­fyrirtæki Time Warner, en þau viðskipti gengu ekki eftir.

Altice er stærsta fyrirtæki sinnar tegundar í Evrópu og býður heimilum sjónvarps- og kapatengingar um alla Evrópu.


Cablevision agrees to sell itself to Altice, a European telecommunications giant, for about $17.7 billion http://t.co/ilDdpR0GMR


— The New York Times (@nytimes) September 17, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár