Hugarvilla að Ísland sé miðja heimsins

Þau Baldur, Kristrún og Gylfi spjölluðu um Evrópu­stefnu stjórn­valda í hlaðvarps­þættinum Völundarhús utan­ríkismála.

Efnahagskrísur þarf til að hagsmuna­hópar sem njóta einokunar­aðstöðu á litlum markaði eins og á Íslandi láti undan kröfum um að taka upp frjálsari viðskipta­hætti og taka þátt í stærra markaðs­svæði eins og EFTA og EES. Þetta kemur fram í fjórða hlaðvarps­þætti Völundar­húss utan­ríkismála Íslands.

Í þættinum ræðir Baldur Þórhallsson, þátta­stjórnandi, við Kristrúnu Heimis­dóttur lektor í lögfræði og Gylfa Zoega prófessor í hagfræði við Háskóla um Evrópu­stefnu íslenskra stjórn­valda.

Fram kemur hjá viðmælendum að margir Íslendingar skilji alþjóða­samvinnu sem ásælni af hálfu annarra ríkja annarra ríkja og marki það utan­ríkisstefnu landsins.

Þátttaka Íslands í áfalla­stjórnun Evrópu­sambandsins í gegnum samninginn um EES eins og til að mynda varðandi sótt­varnir, bóluefna­kaup og aðstoð við að koma Íslendingum til landsins eins og í upphafi COVID-19 faraldursins skiptir sköpum um geti íslenska stjórn­valda að takast á við yfir­standandi farsótt, samkvæmt viðmælendum þáttarins.

Byggist Evrópustefnan á áfallastjórnun?

Þau ræða meðal annars hvort Evrópu­stefna Íslands byggist á áfalla­stjórnun, þ.e. hvort íslensk stjórn­völd ákveði eingöngu að taka aukinn þátt í samvinnu ríkja Evrópu ef þau standa frammi fyrir áfalli eða krísu.

Sem dæmi megi nefna að á 7. áratugnum fóru íslensk stjórn­völd ekki að huga að alvöru að inngöngu í EFTA fyrr en við blasti djúpstæð efnahags­lægð í kjölfar þess að síldin hvarf. Þannig biðu stjórn­völd í tíu ár með það að ganga í EFTA eftir fríverslunar­samtakanna árið 1960. Stjórn­völd sáu ekki ástæðu til að ganga í samtökin á tímum mikillar efnahags­uppsveiflu hér á landi á 7. áratugnum.

Fram kemur í þættinum að Ísland hafi ákveðið að ganga í Evrópska efnahags­svæði (EES) vegna þessa að öll önnur EFTA ríki voru að gerast aðildar að EES. Hefðu Íslendingar staðið utan EES hefði samkeppnis­staða íslenskra útflutnings­fyrirtækja orðið miklu lakari en til að mynda fyrir­tækja í Noregi og Svíþjóð sem þau áttu í samkeppni við.

Ísland hafi gengið í Schengen vegna þess að allar hinar Norður­landa­þjóðirnar voru að gerast aðildar að Schengen og ef Ísland hefði ekki fylgt þeim eftir hefðu Íslendingar þurft að sýna vegabréf til að ferðast til Norður­landanna. Forsætis­ráðherra Íslands á þeim tíma, Davíð Oddsson, var mótfallinn aðild að Schengen en taldi að Íslendingar myndu ekki sætta sig við að þurfa að sýna vegabréf þegar þeir ferðuðust til Norður­landanna og sætti sig því við aðildina.

Ísland sótti um aðild að Evrópu­sambandinu (ESB) níu mánuðum eftir hrundið. Þegar efnahags­lífið rétti síðan tiltölug­lega fljótt úr sér settu stjórn­völd aðildar­viðræðurnar í bið.

Evrópustefnan byggist á því hvað Íslendingum stendur til boða

Viðmælendur telja einnig að Evrópu­stefna Íslands mótist af því að stöðugt sé verið að bregðast við ákvörðunum annarra ríkja hvað þátttöku þeirra varðar í samvinnu Evrópu­ríkja. Þannig hafi Íslands gefist tækifæri til að ganga í evrópska efnahags­svæðið og Schengen. Íslendingar ráði í raun ekki endilega för þegar kemur að þátttöku þeirra í Evrópu­samvinnunni heldur byggist Evrópu­stefnan á því hvað þeim standi til boða.

Land­fræðileg lega Íslands, jaðar­staða í Evrópu, var einnig til umræðu og áhrif hennar á afstöðu lands­manna til þátttöku í Evrópu­samvinnunni. Það að Ísland er á áhrifa­svæði Banda­ríkjanna hafi til að mynda áhrif á Evrópu­stefnu Íslands.

Það hvort kjósendur treysti betur eigin stjórn­völdum eða Evrópu­sambandinu skipti einnig miklu um það að hvaða marki lönd taka þátt í samvinnu Evrópu­ríkja.

Einnig er rætt um hvaða ástæður liggi að baki miklum ágreiningi um þátttöku Íslands í samvinnu Evrópu­ríkja og hvort að það sé tabú í íslenskri stjórnmála­umræðu að tala um að deila valdi með öðrum ríkjum í alþjóða­stofnunum.

Hægt er að hlusta á þáttinn í spil­aranum hér fyrir neðan:

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár