Stafrófskver Heillaspora
Ljósmynd/Elsa Björg Magnúsdóttir
Bókin Heillaspor – gildin okkar (JPV mars 2020) eignaðist fljótlega afkvæmi því fram spratt hugmynd um að gefa hverjum bókstaf lífsgildi. Íslenska stafrófið telur 32 stafi auk fjögurra alþjóðlegra. Til varð stafrófskver Heillaspora en því er ætlað að kynna lesendum mikilvæg lífsgildi. Yfirskriftin Stafrófskvera Heillaspora er
Gjöf til allra barna og þeirra sem unna börnum og vilja rækta heilbrigt samband við sig sjálf, dýrin og umhverfið.
Hver stafur fann lífsgildið innra með sér. Allir stafirnir vildu vera á blaði því það er ávallt rangt að skilja einhvern útundan!
Á, É, , Í, Ó, Ú og Ý sem stundum hafa verið á vara-stafa-bekknum minntu á sig. Stafrófið lét ekki þar við sitja heldur vildu Ð og X vera með þótt þau séu aldrei fyrsti stafurinn í íslenskum orðum. Þá óskuðu fjórir alþjóðlegir stafir, C, Q, W og Z, þess að tilheyra hópnum til að virða þarf fjölbreytni.
Helst langaði mig til að skrifa nýja bók (sem tekur heilt ár að skrifa) en ákvað að anda rólega og hugsa um fegurð hins smáa. Hver stafur mátti öðlast eitt hugtak og hvert hugtak eina stutta setningu, í mesta lagi setta saman úr tíu orðum.
36 lífsgildi röðuðu sér upp í stafrófsröð. Hvert þeirra var stakt og engu öðru líkt því það máttu ekki vera endurtekningar. Saman mynda þau ákveðna heildarmynd eða heimsmynd, að minnsta kosti mózaíkmynd.
Markmiðið var að tjá fagran anda lífsgildanna. Orka stafanna fer ekki í það að einbeita sér að illsku heldur góðvild, ekki að spillingu heldur réttlæti, ekki að ofbeldi heldur láta reyna á mildina.
Annað sem var hafið yfir allan vafa við gerð þessa stafrófs var viðleitni til að forðast klisjur og gamlar tuggur (sem er aldrei ekki einfalt mál (við búum í slíkum heimi)). Það var ekki nóg að láta stafinn A fá hugtakið auðmýkt heldur var einnig nauðsynlegt að láta þetta lífsgildi merkja eitthvað annað en oftast er sagt eins og bara lítillæti og einnig án þess að það væri á skjön við inntak hugtaksins. Í stafrófskverinu er auðmýkt:
A - Auðmýkt: að gleðjast yfir smæð sinni andspænis náttúrunni.“
Augum lesanda er beint að stöðu sinni í heiminum og ekki síst gagnvart náttúrunni með von um að vekja með einhvers konar lotningu.
Stafrófskverið er eins konar áttaviti sem leitað er til þegar fólk veltir fyrir sér næsta áfangastað eða þegar það vill losna úr ógöngum og finna lausn á vanda. Gerum hér tilraun þar sem KÆRLEIKUR – MILDI – UMHYGGJA – ÚTSJÓNARSEMI koma við sögu.
K - KÆRLEIKUR: Að breiða góðvild út um víða veröld öllum börnum til handa.
M - MILDI: Að efla mannúð og læra að bregðast fallega við.
U - UMHYGGJA: Að skilja að allir þurfa á faðmlagi að halda.
Ú - ÚTSJÓNARSEMI: Að bjarga saklausum börnum úr hættulegri stöðu.
Við skulum nefna alvarlegan vanda: Börn í hættulegri stöðu geta verið langveik, fátæk, kúguð eða á flótta undan ógn. Þau þurfa að flýja heimilið eða heimalandið vegna styrjalda, einræðis eða náttúruhamfara. Þau hafa ekki gert neitt af sér og þau gætu alveg eins verið við sjálf. Þau biðjast ásjár. Hvað getum við gert? Endursent þau eða veitt þeim heimili hér? Viljum við valda fjölskyldu á flótta skaða eða viljum við leggjast á sveif með hamingju hennar? Viljum við sýna mildi eða bæta í hörkuna? Viljum við efla umburðarlyndi eða skeytingarleysi? Ætlum við að styrkja umhyggju í samfélaginu eða sjálfselsku? Enginn verður hamingjusamur með því að hugsa einungis um sjálfan sig – heldur með því að gefa af sjálfum sér, gefa öðrum og sýna þeim góðvild. Hvernig eflum við góðvild?
Við skulum skoða gildin í stafrófskverfinu: Við lærum og iðkum valin gildi. Við lokum ekki hjörtum okkar og segjum: Það er enginn leið, enginn valkostur í boði, því miður. Góðvild þarf á hjörtum að halda sem eru opin. Gildin sem við þurfum að læra og iðka til að bjarga börnum úr hættulegri stöðu eru kærleikur, mildi og umhyggja, því þau felast í því að skilja samhengið milli hamingju þeirra sem gefa og þeirra sem þiggja.
Við skulum koma með tillögu að LAUSN: Öll mannúðar- og góðgerðarsamtök vilja börnum vel óháð hverju sem greinir þau í sundur eins og búseta, staða og fjölskylda. Allar meiriháttar stofnanir á jörðinni setja börn í öndvegi og fullorðir eru iðulega reiðubúnir til að leggja eitthvað á sig til að veita börnum skjól, öryggi, menntun og fæði. Við völdum börnum ekki skaða heldur sýnum þeim umhyggju. Ef það er nokkur leið til að bjarga börnum úr hættulegri eða tvísýnni stöðu, þá gerum við það. Ef við höfum tileinkað okkur gildin þá getum við auðveldlega fundið lausnir og ráð. Það kallast útsjónarsemi til að bjarga börnum úr hættulegri stöðu.
Ef við ræktum kærleika, æfum okkur í mildilegum dómum og aðferðum og sýnum öðrum umhyggju þá verðum nógu við útsjónarsöm til að bjarga saklausum börnum úr hættulegri stöðu.
Í dag (20.11.20) er Alþjóðadagur barna SÞ - er það ekki fallegt? Við berum öll ábyrgð, við getum ekki bara jánkað stofnun (UTL) sem endursendir börn út í óvissuna. Við segjum NEI. Við tökum þátt og erum ábyrg. Hlustum á UNICEF.
Stafrófskver Heillaspora er ókeypis og fæst því aðeins gefins. Bókin fæst í bókabókum en til að fá stafrófskverið þarf að senda beiðni á lifsgildin@gmail.com með upplýsingum um sendingarstað og fjölda eintaka. Gefins á meðan upplag endist.
Til hamingju með daginn og stöndum með öllum börnum!
Athugasemdir