Bob Dylan hélt tónleika fyrir einn heppinn aðdáanda

Goðsögnin Bob Dylan hélt í síðasta mánuði tónleika í þekktasta tónlistar­háskóla Philadelphiu borgar, Philadelphia's Academy of Music. Þeir voru merki­legir fyrir þær sakir að það var aðeins einn aðdáandi sem fékk að sjá kappann ásamt hljómsveit leika lögin Heart Beat eftir Buddy Holly, Fat's Domino smellinn Blueberry Hill, It's to Late eftir Chuck Willis og síðan blúsaði bandið í dágóða stund.

Aðdá­andinn heppni, Fredrik Wilkingsson, var himin­lifandi eftir þessa einstöku tónleika fyrir hann einan. Tónleikarnir voru hluti af sænsku kvikmynda­verkefni sem heitir Eperiment Ensam, eða upplifðu aleinn.

Myndband af tónleikunum, sem gert var opinbert í dag, má sjá hér að neðan.

https://www.youtube.com/watch?v=vjWeVHOspm0#t=319

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár