Rafmagnsverð í hæstu hæðum í Noregi

Orkan kostar sífellt fleiri krónur og aura hjá nágrönnum okkar í Noregi. Fyrst urðu Sunn­lend­ingar illa úti en nú hefur orku­krísan náð norður í land. Beðið er eftir blæstri svo vind­orkuverin skili sínu.

Tromsø í Norður-Noregi.
Tromsø í Norður-Noregi. Mynd: Visit Tromsø

„Við höfum fengið góða áminningu um að við erum tengd umheiminum,“ segir Johnny Hordal, framkvæmda­stjóri orku­fyrir­tækisins Salten sem er í eigu nokkurra sveitar­félaga í Mið- og Norður-Noregi. Þessi orð lét hann falla í morgun eftir að methækkanir urðu á raforku­verði á einmitt þessu svæði landsins. Orku­verðið hefur ekki verið hærra frá því árið 2010.

Noregi er skipt upp í verðlags­svæði þegar kemur að raforku. Á nyrsta svæðinu hækkaði verðið um hvorki meira né minna en 341 prósent í dag, segir í frétt NRK um málið. Meðalverð á kílóvatt­stund (kWst) fór þá í 212 norska aura, rúmlega 30 íslenskar krónur. Það er venjulega á bilinu 20-50 aurar. Á morgun er gert ráð fyrir að meðal­verðið hækki í 244 aura eða í tæplega 35 íslenskar krónur.

Hækkanirnar nú eiga sér ýmsar skýringar en kólnandi veður á þar m.a. hlut að máli. Eftir­spurnin eykst og verðið hækkar. „Þá er vindurinn hættur að blása,“ sagði Horsdal. Háþrýsti­svæði liggur sem mara yfir norður­hluta Noregs og gæti gert það í nokkrar vikur í viðbót. Og á meðan framleiða vind­orkuverin lítið rafmagn. Samkvæmt spá Nord Pool, raforku­markaðs Norður­landanna, mun hámarks­verð í Noregi verða 5 norskrar krónur, 71,44 íslenskar, á kílóvatt­stund milli kl. 17 og 18 í dag en þá er eftir­spurnin langmest.

Raforku­verð syðst í Noregi hefur verið óvenju hátt síðustu vikur og mánuði vegna þess að sá hluti orku­kerfisins er tengdur við norður­hluta Evrópu. Íbúar í Norður-Noregi hafa greitt lægra orkuverð en nú gætu þeir þurft að róta í buddunni eftir svipuðum fjölda króna og landar þeirra suður frá. „Það eru dýrar vikur fram undan,“ segir Horsdal við NRK.

En um leið og vetrar­vindar fara að blása mun verðið lækka, segir hann.

Norðurálssamningur tengdur Nord Pool

Annar raforku­samningur Lands­virkjunar við Norðurál á Grundar­tanga hefur frá árinu 2019 verið tengdur við Nord Pool í stað álverðs. Með þessari tengingu fær Lands­virkjun sambærilegt raforku­verð og önnur orku­fyrirtæki á Norður­löndum.

Á síðasta ári var gerður viðauki við þennan samning Norðuráls og Lands­virkjunar og samið um að árið 2024 taki verð­tenging við Nord Pool enda og samningurinn verði á föstu verði eftir það. Nú í september var svo gerður enn einn viðauki við samninginn þar sem dregið var úr verð­tengingu við Nord Pool að hluta til í stað fasts verðs. Einnig var bætt við álverðs­tengingu á fast verð síðar á samnings­tímanum.

Líkt og sjá má á meðfylgjandi mynd hér að ofan, sem fengin er af vef Norðuráls, hefur raforku­verð sveiflast mjög frá því að tenging var gerð við Nord Pool árið 2019.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár