Atvinnulausum Bretum fækkaði um 97 þúsund á þremum mánuðum

Atvinnu­leysi í Bretlandi heldur áfram að minnka, en atvinnu­lausum Bretum fækkaði um 97 þúsund á síðustu þremur mánuðum síðasta árs og mælist atvinnu­leysi nú 5,7 prósent í Bretlandi. Það hefur farið minnkandi jafnt og þétt undan­farin tvö ár. Eftir fjármála­kreppuna, einkum á árunum 2009 og 2010, var atvinnu­leysi í hæstu hæðum í Bretlandi og fór hæst í tæplega tólf prósent. Nú eru 1,86 milljónir Breta án vinnu.

Verðbólga á síðustu þremur mánuðum ársins í fyrra mældist 0,5 prósent, en í janúar mældist hún 0,3 prósent, sem er það minnsta síðan mælingar hófust, segir í frétt breska ríkis­útvarpsins BBC.

David Cameron, forsætis­ráðherra Bretlands, fagnaði þessum nýju hagtölum á Twitter síðu sinni í dag, og minntist á það að atvinnu­þátttaka væri nú sú mesta síðan árið 1971.

Employment is at its highest since records began in 1971 - coincidentally the same year this Bedford van was made. pic.twitter.com/4ncGdzA3T8

— David Cameron (@David_Cameron) February 18, 2015

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár