Pistorius laus úr fangelsi tæpu ári eftir að hann var dæmdur

Oscar Pistorius, sem var dæmdur í fimm ára fangelsi fyrir manndráp af gáleysi fyrir einu ári síðan, hefur verið látinn laus úr fangelsi. Hann mun ljúka afplánun dóms síns í stofu­fangelsi á heimili frænda síns. Pistorious, sem er einn frægasti íþrótta­maður Suður-Afríku, var dæmdur fyrir að skjóta Reevu Steenkamp, kærustu sína, til bana í febrúar 2014.

Hann hélt því fram frá upphafi að hann hefði talið Steenkamp vera innbrots­þjóf og því hefði hann skotið hana til bana. Hún var inni á baðherbergi við hlið svefn­herbergis þeirra og Pistorius skaut fjórum skotum í gegnum hurðina. Þrjú skotanna hæfðu kærustuna og saksóknari hefur því bent á að ásetningur Pistorius hafi verið að drepa hvern þann sem var inni í herberginu, hvort sem hann hafi talið að hann væri að skjóta innbrots­þjóf eður ei. Hann hlaut fimm ára dóm í október í fyrra. Til stóð að sleppa honum á morgun, 20. október, en ákveðið var að láta Pistorious lausan degi fyrr.

Málinu er þó ekki lokið. Áfrýj­un ákæru­valds­ins verður tek­in fyr­ir 3. nóv­em­ber og telur ákæru­valdið dæma hefði átt Pistorius fyr­ir morð í stað mann­dráps. Þá íhugar fjöl­skylda Steenkamp að lögsækja hann.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár