Fordæma aðferð sem íslensk yfirvöld nota

Útlendinga­stofnun notar umdeilda tann­greiningar­aðferð til að meta aldur flótta­barna. Samtök tannlækna í Bretlandi fordæma hugmyndir um að taka aðferðina upp þar í landi og kalla hana bæði siðlausa og óviðeigandi. Þarlend hjálpar­samtök sem vinna með flótta­mönnum taka undir gagn­rýnina.

16 eða 18 ára?
16 eða 18 ára? Í Bret­landi fara nú fram rök­ræður um það hvort rétt­læt­an­legt sé að nota grein­ingu á tönnum til að meta aldur ungra flótta­manna. Íslensk yfir­völd reiða sig á aðferð­ina, þrátt fyrir að hafa verið gagn­rýnd harð­lega fyrir það. Mynd: Wikimedia Commons

Samtök breskra tannlækna (British Dental Association) fordæma hugmynd þingmanns breska íhalds­flokksins, David Davies, um að taka upp tann­greiningar­aðferð þar í landi, til að meta aldur flótta­barna. Breska blaðið Independent fjallar um þetta á vef sínum. Segja samtökin aðferðina bæði óviðeigandi og siðlausa. Þar að auki sé ómögulegt að segja með vissu til um aldur einhvers, með því að nota tann­greiningar­aðferðina.

Ummælin lét þing­maðurinn fjalla í kjölfar þess að hafa séð myndir af innflytjenda­börnum á leið úr Calais-flóttamanna­búðunum til Bretlands á mánudag. Sagði hann þau sum hver ekki líta út fyrir að vera börn. Frönsk yfirvöld ráðgera að loka flóttamanna­búðunum í Calais á næstu vikum og hafa bresk yfirvöld skuld­bundið sig til að taka á móti fleiri flótta­börnum vegna þess.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár