Eignir eiganda hússins á Bræðraborgarstíg sem brann verða kyrrsettar

Eignir fyrir­tækisins HD verks sem átti húsið að Bræðra­borgar­stíg sem brann sumarið 2020 með þeim afleiðingum að þrír létust og tveir slösuðust alvarlega verða kyrr­settar. Hæstiréttur staðfesti í dag úrskurð Lands­réttar um kyrr­setningu eignanna.

Eignir HD verks, eiganda húss sem brann við Bræðra­borgar­stíg árið 2020, verða kyrr­settar. Það voru íbúar sem sluppu úr elds­voðanum á og aðstand­endur þeirra sem létust í brunanum, alls sautján manns sem fóru fram á að eignir fyrir­tækisins yrðu kyrr­settar sem trygging á kröfu þeirra um skaða­bætur. Fólkið reisir mála­tilbúning sinn á því að fyrir­tækið beri ábyrgð á að eignin hafi ekki fullnægt lögbundnum kröfum um bruna­varnir.

Í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar um elds­voðann á Bræðra­borgar­stíg sem gerð var opinber 18. desember í fyrra segir meðal annars að eigandi hússins á hverjum tíma hafi borið ábyrgð á ástandi þess. Honum hafi verið skylt að sækja um tilskilin leyfi vegna breytinga á húsnæðinu og að tryggja viðunandi bruna­varnir. Í skýrslunni kemur fram að notkun hússins hafi verið önnur en teikningar gerðu ráð fyrir og forsendur allt aðrar gagnvart bruna­öryggi. „Húsið var í raun notað til útleigu á herbergjum en ekki sem tvær íbúðir. Breytt notkun kallaði á auknar bruna­varnir og eldvarnar­eftirlit,“ segir í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkja­stofnunar.  

Sama dag og skýrsla HMS var birt, það er 18. desember í fyrra, fóru íbúar hússins og aðstand­endur þeirra sem létust fram á það við sýslumann að eignirnar yrðu kyrr­settar en í byrjun þessa árs synjaði sýslu­maður þeirri kröfu fólksins. Málið var sent til Héraðs­dóms Reykja­víkur til úrlausnar og þar var ákvörðun sýslu­manns felld úr gildi. Í byrjun september var úrskurður Héraðs­dóms stað­festur í Lands­rétti.

Hæstiréttur staðfesti sem fyrr segir úrskurð Lands­réttar og lagði fyrir sýslu­manninn á höfuð­borgar­svæðinu að gera kyrr­setningu hjá fyrir­tækinu HD verk fyrir skaða­bótakröfu hvers íbúa sem komst lífs af úr brunanum og hvers og eins aðstand­enda þeirra sem létust í elds­voðanum.

Skaða­bótakrafa þeirra nemur tæplega 80 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár