ESB: Lykilatriði að styrkja sambandið við Arabaríkin

Utan­ríkis­ráðherrar 28 Evrópu­sambands­ríkja hafa samþykkt aðgerðir til þess að vinna gegn hryðjuverkaógn frá hryðjuverka­samtökum í Mið-Austur­löndum. Federica Mogherini, utan­ríkismála­stjóri Evrópu­sambandsins, tilkynnti eftir fund utan­ríkis­ráðherranna í kvöld, að lykil­atriði væri að styrkja samband við Araba­ríkin og ríkin þar sem hryðju­verkamenn hefðu hreiðrað um sig. Þannig væri hægt að ná varanlegum árangri og auka þekkingu á rótum vanda­málanna, og bæla niður hryðjuverka­ógnina innan frá til langs tíma.

Mogherini sagði að sérstökum verkefnum yrði ýtt úr vör, í samvinnu við Tyrkland, Jemen, Alsír, Egypta­land og ríki við Persaflóa, með það fyrir augum að styrkja utan­ríkis­pólitískt samband við ríki þar sem múslímar væru í meirihluta. Mogherini vildi ekki fara út í nákvæmis­atriði þegar hún var spurð út í það í hverju verkefnin fælust, segir í frásögn BBC.

Fundurinn var boðaður á sama tíma og hryðjuverkaógn hefur verið viðver­andi í Brussel, eftir að 17 óbreyttir borgarar voru drepnir í París, í árásum á ritstjórnar­skrifstofu skop­mynda­ritsins Charlie Hebdo og verslunar­kjarna Gyðinga. Opinberar byggingar í Brussel eru vaktaðar af lögreglu og þung­vopnuðum hermönnum.

Eitt af því sem lögreglu­yfirvöld í Evrópu óttast er að evrópskir borgarar, sem hafa tekið þátt í hernaði í Írak og Sýrlandi, muni snúa aftur til baka og fremja morð og glæpi. Þúsundir Evrópubúa hafa farið til landanna tveggja, samkvæmt upplýsingum sem teknar hafa verið saman af yfir­völdum í Evrópu­ríkja.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár