Heimilisnotkun raforku mun aukast næstu áratugina vegna rafbílavæðingar

Ný skýrsla raforku­hóps Orkuspár­nefndar er komin út en þar eru dregnar fram þrjár sviðs­myndir um raforku­notkun 2018 til 2050.

Ef orku­skipti í samgöngum á landi ganga hraðar fyrir sig en reiknað er með í raforkuspá verður raforku­notkun meiri næstu árin og áratugina en spáin gerir ráð fyrir en notkunin verður þó í lok spátímans svipuð og gert var ráð fyrir. Ekki eru talin nein vandkvæði á að afla orku fyrir aukna almenna notkun, samkvæmt spám. Þó þarf að bæta við orkuöflun sem svarar til tveggja Búrfells­virkjana I. Þetta kemur fram í frétt Morgun­blaðsins í dag.

Jafnframt kemur fram að síðasta raforkuspá hafi verið gerð árið 2015 og sé uppreiknuð árlega en endur­skoðuð frá grunni á fimm ára fresti. Á síðasta ári hafi verið sýndar há- og lágspár, til hliðar við spá um raforku­notkun. Í nýjum endur­reikningi sem miðast við raforku­notkun á síðasta ári og ýmsar upplýsingar sem fram hafa komið síðan síðasti endur­reikningur gerður séu sýndar þrjár sviðs­myndir til hliðar við raforkuspá. Meðal annars sé litið til stefnu stjórn­valda um orku­skipti og umhverfismál og spár Hagstofu Íslands um áætlaðan fólks­fjölda.

Í skýrslu Orku­stofnunar kemur fram að vel sé þekkt að veiga­miklar forsendur varðandi raforku­notkun geti breyst snögglega. Á það til dæmis við um stór­notkun sem geti haft veruleg áhrif á heildar­notkun. Að sama skapi hafi notkun rafbíla aukist mikið á undan­förnum árum hérlendis sem erlendis og margir greiningar­aðilar hafi bent á mikla möguleika rafdrifinna bíla í fram­tíðinni á kostnað hinna hefð­bundnu bíla sem notast við jarðefna­eldsneyti. „Um allan heim er leitað leiða til að skipta út sem mestu af notkun jarðefna­eldsneytis fyrir umhverfis­vænni kosti og nánast allar leiðir sem þar koma til greina kalla á verulega raforku­notkun sem þá er mikilvægt að komi frá endurnýjanlegum orku­gjöfum,“ segir í skýrslunni.

Raforkunotkun hvers heimilis hefur minnkað á síðustu árum

Jón Vilhjálmsson, sviðs­stjóri orku hjá verkfræði­stofunni Eflu, sem vinnur með raforku­hópi orkuspár­nefndar, segir í samtali við Morgun­blaðið að heildar­notkun breytist lítið frá fyrri spám. Þó sé meiri breyti­leiki í spánum vegna þess að betur hafi verið farið ofan í orku­skipti í samgöngum á landi. Raforku­notkun hvers heimilis fór lengi vaxandi ár frá ári. Á allra síðustu árum hefur hún minnkað, meðal annars vegna aukinnar notkunar sparneytnari heimilis­tækja og lýsingar. Jón segir að gert sé ráð fyrir að þessi þróun gangi yfir og fari síðan að aukast með fjölgun rafbíla sem hlaðnir eru á heimilum.

Fyrsta sviðs­myndin sem tilgreind er kallast „hægar framfarir“. Þar er gert ráð fyrir minni hagvexti en í raforkuspá og minni áhersla á orku­skipti. Hún sýnir 0,9 prósent árlegan vöxt að meðaltali, saman­borið við 1,7 prósent vöxt í raforkuspá. Í sviðs­myndinni „grænni framtíð“ er gert ráð fyrir meiri hagvexti auk þess sem miðað er við meiri áherslu á umhverfismál, meðal annars hraðari orku­skipti. Þessi sviðsmynd sýnir 2,2 prósent aukningu á ári að meðaltali og mun almenn raforku­notkun rúmlega tvöfaldast til loka spátímabilsins. Þriðja sviðs­myndin er „aukin stór­notkun“. Hún grundvallast á þróuninni frá árinu 2008. Samkvæmt þessari forsendu verður aflþörf stór­notenda orðin rúmlega 3.000 MW árið 2050 og samanlögð orkuþörf almenna markaðarins og stór­notenda 33.400 gígavatt­stundir.

Á næsta ári verður gefin út ný raforkuspá, endur­skoðuð frá grunni. Jón segir í samtali við Morgun­blaðið að líklegt þyki að hún nái tíu árum lengra fram í tímann, til ársins 2060. Jón telur að vöxturinn framundan sé svipaður og orku­fyrirtækin þekki frá undan­förnum áratugum og eigi vel að ráða við að sinna með virkjunum, orku­flutningum og dreifingu. Að minnsta kosti fyrir almenna notkun sem raunar er aðeins hluti af heildar­notkuninni. Þá reiknar hann með að hægt verði að stýra notkuninni betur í fram­tíðinni með framförum í tækni. Nefnir hann sérstak­lega tækni til að stýra hleðslu rafbíla í fjölbýlis­húsum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár