Einn af hverjum tíu Íslendingum reykir enn daglega

Einungis tíu prósent Íslendinga yfir 18 ára aldri reyktu daglega í fyrra. Daglegar reykingar eru algengastar hjá fólki í aldurs­hópnum 45 til 54 ára þar sem 14 prósent kveikir enn í. Í yngsta aldurs­hópnum, 18 til 24 ára, reykja hins vegar einungis fimm prósent daglega og 73 prósent hafa aldrei reykt. Frá þessu er greint í Frétta­blaðinu sem byggir umfjöllun sína á Talna­brunni embættis lands­læknis.

Reykingar hafa dregist hratt saman á undan­förnum árum. Um aldar­mótin síðustu reyktu um 25 prósent Íslendinga daglega, árið 2007 var það hlutfall komið í 18 prósent þjóðarinnar og árið 2014 niður í 14 prósent. Íslendingar eru því að drepa í sígarettum sínum á miklum hraða. Lítill munur er á milli kynja þeirra sem reykja enn daglega.

Í Talna­brunninum kemur einnig fram að Íslendingum finnst ennþá gott að drekka sig reglulega ölvaða. Til að meta umfang áfengis­neyslu voru lagðar fyrir þrjár spurningar. Í fyrsta lagi var spurt hversu oft á síðustu 12 mánuðum viðkomandi hefur drukkið a.m.k. eitt glas sem inni­heldur áfengi. Í öðru lagi var spurt um ölvunar­drykkju, þ.e. hversu oft á síðustu 12 mánuðum viðkomandi hefur drukkið á einum degi að minnsta kosti 5 glös sem innihalda áfengi. Þá var að lokum spurt hversu marga áfenga drykki viðkomandi drekkur að jafnaði þegar áfengis er neytt.

Í niður­stöðum Talna­brunnsins kemur fram a karlar drekka oftar áfengi að jafnaði en konur, eða að meðaltali fimm sinnum í mánuði en konur rúmlega þrisvar sinnum.

35 prósent karla segjast drekka sig ölvaða einu sinn í mánuði eða oftar en 18 prósent kvenna. Karlar drekka sig ölvaða 18 sinnum á ári að meðaltali og konur að meðaltali 8 sinnum.

Það eru sérstak­lega yngri karlar sem drekka sig oft ölvaða. 52 prósent karla í aldurs­hópnum 18 -24 drekka sig ölvaða einu sinni eða oftar í mánuði saman­borði við 30 prósent í aldurs­hópnum 45 til 54 ára. Yngstu konurnar drekka sig líka oftast ölvaðar einu sinni í mánuði eða oftar, eða 45 prósent þeirra. Það hlutfall er einungis 15 prósent á meðal kvenna í aldurs­hópnum 45 til 54 ára.

Ölvunar­drykkja kvenna einu sinni í mánuði eða oftar mælist 45% í aldurs­hópnum 18-24 ára,

Í Talna­brunninum kemur fram að um helmingur full­orðinna Íslendinga hreyfir sig í samræmi við ráðleggingar og er það sambærilegt við fyrri kannanir á hreyfingu. Áhyggju­efni er hins vegar að umtalsverður hluti lands­manna hreyfir sig lítið sem ekkert.

Hægt er að lesa Talna­brunninn hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár