Forstjóri Apple: Ég er stoltur af því að vera samkynhneigður

„Ég er stoltur af því að vera samkyn­hneigður og álít það að vera samkyn­hneigður vera mestu gjöf guðs til mín,“ segir Tim Cook, forstjóri Apple, í pistli á tækni­hluta vefsíðu Bloomberg Businessweek. Í pistlinum opinberar hann í fyrsta skipti að hann sé samkyn­hneigður, þó hann hafi aldrei neitað fyrir hana. „Þó að ég hafi aldrei neitað kynhneigð minni, þá hef ég ekki viðurkennt hana opinber­lega heldur þar til nú,“ segir Cook í grein sinni.

Hann segir enn fremur að það að vera samkyn­hneigður hafi hjálpað honum að dýpka skilning sinn á stöðu minnihluta­hópa í samfélaginu, og gefið honum möguleika á því að fylgjast með áskorunum sem minnihluta­hópar séu að takast á við á hverjum degi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár