Katrín: Nýjar upp­lýsingar úr Glitnis­skjölunum hafa engin áhrif á stjórnarsamstarfið

Katrín Jakobs­dóttir forsætis­ráðherra segir ekki við hæfi að þingmenn séu stórtækir í viðskiptum samhliða þing­mennsku og að viðskipti í skatta­skjólum grafi undan lýðræðis­samfélögum. Viðhorf hennar til stjórnmála­samstarfsins við Bjarna Benediktsson og Sjálfstæðis­flokkinn er óbreytt.

Engin áhrif
Engin áhrif Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra segir að við­horf hennar til stjórn­ar­sam­starfs­ins við Bjarna Bene­dikts­son hafi ekki breyst þar sem upp­lýs­ing­arnar um við­skiptaum­svif hafi legið fyrir í aðdrag­anda þing­kosn­ing­anna árið 2017. Mynd: Heiða Helgadóttir

„Það er mín afstaða að stjórn­málamenn eigi almennt ekki að vera umsvifa­miklir í viðskiptum samhliða stjórnmála­starfi þar sem það skapar tortryggni og vantraust,“  segir Katrín Jakobs­dóttir, formaður Vinstri grænna og forsætis­ráðherra, í svari sínu við spurningum Stundarinnar um afstöðu hennar til upplýsinga um viðskipti Bjarna Benedikts­sonar, formanns Sjálfstæðis­flokksins og fjármála­ráðherra, sem Stundin hefur greint frá í fréttum sem unnar eru upp úr skjölum innan úr Glitni banka.

„Að sama skapi liggur fyrir að núverandi fjármála­ráðherra hefur ekki komið að neinum slíkum umsvifum í áratug“ 

Katrín segir að hins vegar breyti þessar upplýsingar engu um viðhorf hennar til núverandi ríkis­stjórnar þar sem marg­háttaðar upplýsingar um viðskipti Bjarna hafi legið fyrir í aðdrag­anda kosninganna um haustið 2017.  Hún segir að þær reglur um hagsmuna­skráningu þingmanna sem nú eru í gildi hafi ekki gilt á árunum fyrir hrunið 2008 og einnig að Bjarni hafi ekki haft neina aðkomu að viðskipta­lífinu í áratug: „Þá liggur einnig fyrir, líkt og fram kemur í frétt Stundarinnar um þessa fyrir­spurn, að upplýsingar um margþætt umsvif núverandi fjármála­ráðherra í viðskipta­lífinu samhliða þing­mennsku fyrir hrun höfðu komið fram áður en gengið var til síðustu kosninga. Að sama skapi liggur fyrir að núverandi fjármála­ráðherra hefur ekki komið að neinum slíkum umsvifum í áratug,“ segir Katrín. 

Miðað við svör Katrínar þá er hún á þeirri skoðun að þingmenn eigi ekki að vera stórir þátt­takendur í viðskipta­lífinu samhliða þing­mennsku en að sama skapi þá telur hún að viðskipta­umsvif Bjarna hafi legið fyrir um hríð og að frekari upplýsingar um þau hafi ekki breytt viðhorfi hennar til samvinnu við Bjarna og flokk hans.

Fleiri stjórnmálamenn virkir í viðskiptum

Eitt af því sem Katrín bendir á í rökstuðningi sínum fyrir svari sínu er að aðkoma stjórn­málamanna að viðskipta­lífinu á Íslandi hafi ekki verið bundin við Bjarna Benediktsson heldur hafi fleiri þingmenn tekið þátt í viðskipta­lífinu. Þannig má segja að Katrín bendi á að slík aðkoma stjórn­málamanna að viðskipta­lífinu hafi verið lenska á árunum fyrir hrunið 2008. „Sömuleiðis hefur á þeim tíu árum sem liðin eru frá hruni umhverfi þingmanna verið breytt mjög til hins betra. Þannig voru teknar upp reglur um hagsmuna­skráningu og siða­reglur fyrir þingmenn á árunum eftir hrun sem ekki voru á Íslandi fyrir hrun. Ástæða þess er meðal annars umfjöllun í Rann­sóknar­skýrslu Alþingis þar sem fjallað er um viðskipta­umsvif þingmanna á þessum tíma, meðal annars núverandi fjármála­ráðherra en einnig annarra þingmanna enda voru slík umsvif ekki óalgeng á þessum tíma,“ segir í svari Katrínar. 

„... enda voru slík umsvif ekki óalgeng á þessum tíma“

Fram kemur í svari Katrínar að hún telji réttara að horfa á kerfið almennt, heldur en að líta til einstakra, siðferðislegra álitamála í þessum efnum. „Ég hef ekki verið og er ekki hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerfis­lægan vanda í einstök siðferðileg álitamál sem eru afleiðing aukinnar einstaklings­hyggju og einstaklingsvæðingar stjórn­málanna. Það eru mun lang­drægari áhrif sem hljótast af því að breyta kerfinu sjálfu,“ segir hún.

Í umfjöllun Stundarinnar hefur meðal annars komið fram að Bjarni hafi stýrt viðskipta­veldi sem skilur eftir sig tæplega 130 milljarða króna ógreiddar skuldir í íslenska banka­kerfinu. 

„Það er og hefur verið mín skoðun að mikilvægt sé að íslensk og alþjóðleg löggjöf taki á skatta­skjólum enda grafa þau undan velferðar- og lýðræðis­samfélögum.“

Skattaskjól grafa undan lýðræðissamfélögum 

Stundin spurði Katrínu einnig um viðhorf hennar til skatta­skjóla en upplýsingar í Glitnis­skjölunum gefa fyllri mynd en áður hefur komið fram um viðskipti Bjarna Benedikts­sonar í félaginu Falson í skatta­skjólinu Seychelles fyrir hrunið 2008. Í svari sínu um skatta­skjól segir forsætis­ráðherra: „Aflandsfélög á lágskatta­svæðum er ein afurð frjálsra fjármagns­flutninga og nýfrjálshyggju­væðingar alþjóða­viðskipta. Það er og hefur verið mín skoðun að mikilvægt sé að íslensk og alþjóðleg löggjöf taki á skatta­skjólum enda grafa þau undan velferðar- og lýðræðis­samfélögum.“

Frekari upplýsingar um viðskipti Bjarna í skatta­skjólum hafa því, samkvæmt öðru svari Katrínar, ekki heldur haft áhrif á viðhorf hennar til samstarfs við hann og flokkinn. 

Tekið skal fram að greint var frá þessum frekari upplýsingum um viðskipti Bjarna í skatta­skjólum fyrir kosningarnar til Alþingis í fyrra. 

Spurningar Stundarinnar og svör Katrínar Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra fylgja hér á eftir. 

Svar Katrínar við spurningum Stundarinnar um viðhorf hennar til viðskiptasögu Bjarna Benediktssonar: 

„Það er mín afstaða að stjórn­málamenn eigi almennt ekki að vera umsvifa­miklir í viðskiptum samhliða stjórnmála­starfi þar sem það skapar tortryggni og vantraust. Um það voru stjórn­málamenn og stjórn­málaflokkar engan veginn sammála fyrir hrun eins og kemur fram í Rann­sóknar­skýrslu Alþingis. Vinstri-græn höfðu þó skýra sýn á þessi mál en við vorum t.d. fyrsti flokkurinn til að gera grein fyrir öllum styrkjum einka­aðila til hreyfingarinnar og gagnrýna óskýr mörk milli stjórn­mála og viðskipta­lífs. En sem betur fer skapaðist samstaða á sínum tíma um lög um fjármál stjórn­málaflokka þannig að þau mál hafa tekið stór­felldum breytingum til batnaðar.

Sömuleiðis hefur á þeim tíu árum sem liðin eru frá hruni umhverfi þingmanna verið breytt mjög til hins betra. Þannig voru teknar upp reglur um hagsmuna­skráningu og siða­reglur fyrir þingmenn á árunum eftir hrun sem ekki voru á Íslandi fyrir hrun. Ástæða þess er meðal annars umfjöllun í Rann­sóknar­skýrslu Alþingis þar sem fjallað er um viðskipta­umsvif þingmanna á þessum tíma, meðal annars núverandi fjármála­ráðherra en einnig annarra þingmanna enda voru slík umsvif ekki óalgeng á þessum tíma.

Vegna þessara nýju reglna liggja nú fyrir upplýsingar um möguleg fjárhagsleg tengsl þingmanna og ráðherra. Þá liggur einnig fyrir, líkt og fram kemur í frétt Stundarinnar um þessa fyrir­spurn, að upplýsingar um margþætt umsvif núverandi fjármála­ráðherra í viðskipta­lífinu samhliða þing­mennsku fyrir hrun höfðu komið fram áður en gengið var til síðustu kosninga. Að sama skapi liggur fyrir að núverandi fjármála­ráðherra hefur ekki komið að neinum slíkum umsvifum í áratug. Þessar upplýsingar lágu því fyrir þegar Vinstri græn tóku ákvörðun um að mynda núverandi ríkis­stjórn. Það sem mestu réð þó við þá ákvörðun var að með þeim sáttmála sem liggur til grund­vallar ríkis­stjórnar­samstarfinu verður ráðist í þau löngu tímabæru samfélags­lega mikilvægu verkefni sem Vinstri-græn lögðu áherslu á fyrir kosningar.

Aflandsfélög á lágskatta­svæðum er ein afurð frjálsra fjármagns­flutninga og nýfrjálshyggju­væðingar alþjóða­viðskipta. Það er og hefur verið mín skoðun að mikilvægt sé að íslensk og alþjóðleg löggjöf taki á skatta­skjólum enda grafa þau undan velferðar- og lýðræðis­samfélögum. Á árunum eftir hrun voru innleiddar svokallaðar CFC-reglur sem ætlað var að tryggja upplýsinga­skráningu um slík félög. Þá beitti ég mér sérstak­lega fyrir því að reglur yrðu settar um svokallaða þunna eigin­fjármögnun og lagði ítrekað fram frumvörp þess efnis. Slíkar reglur voru leiddar í lög á grund­velli frumvarps frá núverandi fjármála­ráðherra þar sem ýmsar aðrar reglur til að sporna gegn skatts­vikum voru innleiddar. Frekari laga­breytingar voru gerðar fyrr á þessu ári til að vinna gegn skatts­vikum og á þing­málaskrá í nóvember er áætlað frumvarp  með frekari breytingum í þessa átt. Þar má m.a. nefna ákvæði um svokölluð CFC-félög sem heimila stjórn­völdum að skatt­leggja tekjur erlendra félaga sem staðsett eru í skatta­skjólum, en eru í íslenskri eigu hér á landi. Sömuleiðis verða reglur um milli­verð­lagningu og sömuleiðis reglur um frádrátt vaxta vegna lána milli tengdra aðila hertar og gerðar skýrari.

Í frum­varpinu verður einnig að finna hertar reglur um skatt­lagningu starfsmanna­leiga. Þessar breytingar munu án efa gefa skatt­yfirvöldum frekari tækifæri til að herða róðurinn gegn skatt­undandrætti og skatts­vikum til viðbótar við þau sem lögfest hafa verið á undan­förnum árum í tengslum við aðild Íslands að BEPS-aðgerða­áætlun OECD og G20 ríkjanna gegn alþjóðlegri skatta­sniðgöngu og skatta­skjólum. Aukinn fjöldi upplýsinga­skipta­samninga milli Íslands og annarra ríkja, m.a. við þekkt skatta­skjól, skipta hér einnig miklu máli.

„Í þessum málum eins og flestum öðrum er það mín afstaða að mestu skipti að breyta kerfinu“

Í þessum málum eins og flestum öðrum er það mín afstaða að mestu skipti að breyta kerfinu. Skatta­skjól eru afleiðing þess kerfis sem byggt var upp á forsendum nýfrjálshyggju og frjálsra fjármagns­flutninga. Ég hef ekki verið og er ekki hlynnt þeirri afstöðu að smætta kerfis­lægan vanda í einstök siðferðileg álitamál sem eru afleiðing aukinnar einstaklings­hyggju og einstaklingsvæðingar stjórn­málanna. Það eru mun lang­drægari áhrif sem hljótast af því að breyta kerfinu sjálfu og það er t.d. fagnaðar­efni að baráttan gegn skatta­skjólum og vinna til að efla traust á stjórn­málum og stjórn­sýslu sé orðið eitt af forgangs­málum OECD. Þessi afstaða mín kom raunar fram í viðtali við The Guardian fyrr á þessu ári þar sem ég var spurð um þessi málefni.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár