Tveir flóttamenn á mínútu

Sýrlenska þjóðin hefur verið á flótta undan­farin fjögur ár. Borgara­styrjöld í heima­landinu hefur hrakið um sjö milljónir á vergang og yfir 150.000 liggja í valnum. Vægðar­leysið er algert, átökin skilja eftir sig sviðna jörð og haldi fram sem horfir verður landið rústir einar. Grunur er um að efna­vopnum hafi verið beitt gegn almennum borgurum. Sögur af sveltu fólki, pyntingum og aftökum eru hræðilegar. Eins og á öðrum átaka­svæðum beita andstæðingar nauðgunum kerfis­bundið í þeim tilgangi að niður­lægja hver aðra og þær stúlkur og konur sem fyrir ofbeldinu verða eru hlut­gerðar í orðsins fyllstu (og verstu) merkingu. Stríðandi fylkingar umkringja heilu hverfin og stráfella íbúana, sem enga undankomu­leið eiga. Hjálpar­samtök komast ekki að fólkinu sem innikróað er á átaka­svæðunum. Starfs­fólk, sjálfboða­liðar og sjúkra­bílar Rauða hálf­mánans eru skotmörk og alls hafa 34 verið myrtir við störf sín báðum megin víglínunnar síðan átökin hófust. Í Sýrlandi ríkir neyðar­ástand.


Lítið land, stórt vandamál


Líbanon er lítið land fyrir botni Mið­jarðar­hafs, umlukið Sýrlandi með landa­mæri í suðri að Ísrael/Palest­ínu. Ekki þarf að hafa um það mörg orð hve mik­il­vægt og erfitt það er fyrir svo fámenna þjóð (4,5 millj­ónir) að halda frið og hlut­leysi með svo öfl­uga nágranna. Þrátt fyrir að vera lang­minnst nágranna­landa Sýrlands, aðeins um 10.000 km2 að stærð (Ísland er um 103.000 km2), hýsir það stærstan hluta þeirra sem flúið hafa átökin. Áætla má að nú þegar séu um 1,5 millj­ónir Sýr­lend­inga í Líbanon og ekk­ert lát virð­ast vera á fjölgun þeirra. Sam­ein­uðu þjóð­irnar skrá að með­al­tali tvo nýja flótta­menn inn í landið á hverri mín­útu. Nú þegar eru sýr­lenskir flótta­menn fjórð­ungur íbúa lands­ins; hlut­fall sem á sér enga hlið­stæðu.

almennt_08_05_2014
almennt_08_05_2014

Þetta er örstutt brot úr frétta­skýringu Kjarnans um ástandið í Líbanon. Lestu hann í heild sinni hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár