Samþykktu tæknifrjóvganir með erfðaefni þriggja einstaklinga

Þingmenn í neðri deild breska þingsins samþykktu í dag laga­frumvarp sem heimilar vísinda­mönnum að búa til fóstur­vísa úr erfðaefni þriggja einstaklinga. 382 þingmenn greiddu atkvæði með málinu en 128 voru mótfallnir, samkvæmt frétt BBC.

Lávarða­deild breska þingsins þarf nú einnig að greiða atkvæði um málið, en ef það verður samþykkt verður um tímamót að ræða í læknis­fræði. Þá verður Bretland fyrsta ríkið til að framkvæma tækni­frjóvgun af þessu tagi. Samkvæmt breskum fjöl­miðlum er talið líklegt að lávarða­deildin samþykki frum­varpið og þá gæti fyrsta barnið sem fæðist með erfðaefni þriggja einstaklinga fæðst í heiminn á næsta ári.

Alison Murdoch, yfirmaður Newcastle Fertility Centre at Life sem er frumkvöðull þessarar tækni, sagði við fjölmiðla í dag að samþykkt þingsins væru góðar fréttir fyrir framsækna læknis­fræði. Andstæðingar tillög­unnar ætla að halda áfram að berjast gegn því að tæknin verði leyfð, vegna þess að hún veki of margar siðferðis- og öryggis­spurningar.

Tæknin er breytt útgáfa af tækni­frjóvgun, þar sem erfðaefni tveggja foreldra eru notuð en jafnframt hvatberar (e. mitochondria) úr annarri konu. Börn sem myndu fæðast með þessum hætti hefðu því 0,1 prósent erfðaefni úr þeirri konu. Ætlunin er að koma í veg fyrir að ólæknandi erfða­sjúkdómar berist frá móður til barns.

Sjáðu skýringar­myndir á vef BBC.

Talið er að erfða­sjúkdómar sem berast með hvatberum hafi áhrif á um 100 börn í Bretlandi á ári. Í 10 tilvikum valdi sjúk­dómarnir mjög alvarlegum sjúkdómum eins og lifrar­bilum, vöðva­rýrnun, blindu og heila­skaða, samkvæmt frétt Guardian.

Málið hefur vakið gríðar­mikla athygli í Bretlandi og víðar. Meðal þess sem kom fram í þinginu og víðar í dag voru áhyggjur af því að aðferðin væri ekki örugg og því hvort hún væri upphafið að víðtækum breytingum. Þingkona Íhalds­flokksins, Fiona Bruce, sagði meðal annars að það væri einfald­lega ekki hægt að spá fyrir um afleiðingarnar af þessu. „En eitt er víst, þegar búið er að gera þessa breytingu ... þá verður ekki aftur snúið.“ Í sama streng tók David King hjá hópnum Human Genetics Alert, við BBC í dag. „Þegar búið er að fara yfir siðferðis­legu línuna, er mjög erfitt að taka ekki næsta skref í því að hanna börn.“

Þingmenn kusu frjálst í málinu en ekki samkvæmt flokks­línum. Forvígis­menn bæði íhalds­manna og Verkamanna­flokksins sögðu þó að þeir litu á málið sem mikilvægt vísindalegt skref en alls ekki gena­breytingar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár