Í þessum löndum er hæsta hlutfall kvenna í stjórnunarstöðum

Samkvæmt nýrri skýrslu Alþjóða­vinnumála­stofnunarinnar (ILO) eru mestar líkur á að finna konu í stjórnunar­stöðu á Jamaíka, en tæp sextíu prósent stjórn­enda á eyjunni í Karíbahafinu eru konur. Skýrslan ber heitið Women in Business and Management: Gaining Momentum.

Samkvæmt niður­stöðum skýrslunnar, sem byggir á upplýsingum allt til ársins 2012, situr Kólumbía í öðru sæti listans, en þar í landi eru 53 prósent stjórn­enda konur. Í þriðja sætinu situr annað eyríki, Saint Lucia, þar sem rösk 52 prósent stjórn­enda eru kvenkyns.

Banda­ríkin eru í fimmtánda sæti, þar sem hlutfall kvenn­stjórnenda er 43 prósent, og Ísland situr í 22. sæti listans með 39,9 prósent. Úkraína er með sama hlutfall kvenn­stjórnenda og Ísland en á meðal þeirra lands sem eiga sæti ofar á listanum eru Fillipseyjar, Panama, Lettland, Úrúgvæ, Mongólía og Hvíta-Rússland.

Samkvæmt úttekt Alþjóða­vinnumála­stofnunarinnar gegna 38,2 prósent kvenna í stjórnunar­stöðum, starfi yfir- eða milli­stjórnenda. Ísland situr þar í níunda sæti, en á toppi listans trónir Dóminíska lýðveldið, þar sem 55,8 prósent kvenna í stjórnunar­stöðum eru yfir- eða milli­stjórnendur.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár