Tveir bræður grunaðir um árásirnar á Charlie Hebdo, ganga enn lausir

Franska lögreglan segir að bræðurnir Said Kouachi og Cherif Kouachi hafi framið ódæðis­verkin í og við höfuð­stöðvar skop­mynda­blaðsins Charlie Hebdo í gærmorgun.Tólf létust, þar á meðal ritstjóri blaðsins og þekktustu skopmynda­teiknarar þess. Fjöldi manns hefur verið hand­tekinn í tengslum við leitina að mönnunum en þeir ganga sjálfir enn lausir. Árásin er mann­skæðasta hryðjuverka­árás sem átt hefur sér stað í Frakk­landi frá árinu 1961, en þá stóð Alsírska stríðið yfir.

Árásin í gær var ekki sú fyrsta sem Charlie Hebdo hafði orðið fyrir af hendi manna sem voru ósáttir með teikningar þess af spámanninum Múhammeð. Árið 2011 var sprengjum varpað á skrif­stofur blaðsins.

Frönsku þjóðinni er mjög brugðið vegna árásarinnar á Charlie Hebdo. Tólf létust, tveir lögreglu­menn og tíu starfs­menn blaðsins.

Frönsku þjóðinni er mjög brugðið vegna árásarinnar á Charlie Hebdo. Tólf létust, tveir lögreglumenn og tíu starfsmenn blaðsins.
Frönsku þjóð­inni er mjög brugðið vegna árás­ar­innar á Charlie Hebdo. Tólf lét­ust, tveir lög­reglu­menn og tíu starfs­menn blaðs­ins.

Annar mannanna sem leitað er að, Cherif Kouachi, er 32 ára. Hann hefur verið dæmdur fyrir aðild að hryðju­verkum vegna aðkomu sinnar að samkomum sem safnaði saman og sendi vígamenn til Írak. Said Kouachi er eldri bróðir hans. Þeir eru báðir sagðir vopnaðir og mjög hættu­legir, að sögn frönsku lögreglunnar.

Alls voru sjö hand­teknir í nótt, samkvæmt frétt BBC. Allir hinir handteknu eru vinir eða hluti af fjöl­skyldu Kouachi-bræðranna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár