Starfsmenn „á plani“ lykilfólk hjá Facebook

Facebook hefur birt upplýsingar um laun og bónus­greiðslur eftir lykil­störfum í starfsemi fyrir­tækisins, fyrir utan helstu stjórn­endur, og raða forrit­arar og verk­fræðingar sér í verð­mætustu störfin. Þó stjórn­endur fyrir­tækisins séu margir hverjir með svimandi há laun, þá eru það oft starfs­mennirnir á „plani“ sem mestu skipta í daglegum rekstri og þróun.

Hjá Facebook er mikið lagt upp úr teymis­vinnu og eru hugbúnaðar­verk­fræðingar meðal annars að störfum í teymum sem hafa misjafna ábyrgð og hlutverk innan fyrir­tækisins, og skýrist launa­munur þeirra meðal annars af því. (Í töflunni hér að neðan er ábyrgðar­munur skilgreindur með rómverskum tölum frá I til III)

Auk hefð­bundinna launa þá eru margir starfs­manna Facebook, einkum þeir sem lengstan starfs­aldur hafa, í eigenda­hópi fyrir­tækisins. Mark Zuckerberg, forstjóri og stofnandi Facebook, er með helstu þræði í hendi sér í þessu ört vaxandi fyrirtæki, sem hefur verið að styrkja rekstrar­grundvöll sinn mikið að undan­förnu, en það varð 10 ára í febrúar í fyrra. Uppgangur þess hefur verið með ólíkindum og eru fá fyrirtæki í sögu tækni­iðnaðar sem hafa breytt samfélaginu með jafn áhrifa­miklum hætti og Facebook.

Virkir mánaðar­legir notendur Facebook eru 1,23 milljarðar manna um allan heim, þar af er ríflega milljarður sem notar Facebook reglulega í gegnum snjall­síma. Meira en helmingur auglýsinga­tekna Facebook kemur í gegnum auglýsingar fyrir snjall­síma.

Hér að neðan má sjá upplýsingar um árleg laun ólíkra starfs­manna hjá Facebook, sem ekki teljast til helstu stjórn­enda, en eru þó í lykil­störfum í fyrir­tækinu. Samkvæmt umfjöllun Quartz, er algengt að Facebook ráði til sín starfs­fólk sem hefur menntun frá Stanford Háskóla í Kaliforníu, líkt og Apple og Google gera einnig.

  1. Rekstrar­legur stjórn­andi: $380,861 - 49,5 milljónir króna.

2. Hugbúnaðar­verk­fræðingur I: $259,349 - 33,7 milljónir króna.

  1. Yfirmaður hugbúnaðar: $211,647 - 27,5 milljónir króna.

  2. Hugbúnaðar­verk­fræðingur II: $209,988 - 27,3 milljónir króna.

  3. Vöru­stjóri: $194,907 - 25,3 milljónir króna.

  4. Gagna sérfræðingur: $185,743 - 24,1 milljón króna.

  5. Hugbúnaðar­verk­fræðingur III: $183,397 - 23,8 milljónir króna.

  6. Tækni­sérfræðingur: $175,589 - 22,8 milljónir króna.

  7. Rann­sóknar sérfræðingur: $172,705 - 22,4 milljónir króna

  8. Hugbúnaðar­verk­fræðingur: $171,076 - 22,3 milljónir króna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár