Vilks var í skjóli í eldhúsinu á meðan að skotárásin stóð yfir

Sænska skopmynda­teiknaranum Lars Vilks var komið í skjól í kælu­geymslu í eldhúsi í menningar­húsinu Krudttønd­en á Aust­ur­brú í Kaup­manna­höfn, eftir að skotárás hófst þar fyrr í dag. Þetta er haft eftir Helle Merete Brix, sem er einn skipuleggjenda ráðstefnunnar sem þar fór fram, á vef Berlinske.

Lars Vilks.

Lars Vilks.
Lars Vilks.

Að minnsta kosti þrír eru alvarlega særðir og einn látinn eftir árásina. Árásar­mennirnir flúðu á dökkum Volkswagen Polo en hafa nú skipt um bíl. Gríðar­lega umsvifa­mikil leit stendur yfir af þeim. Um er að ræða tvo menn sem voru dökk­klæddir og tala góða dönsku.

Brix sagði við sjónvarps­stöðina TV2 að hún hafi falið sig í eldhúsi ráðstefnu­hússins ásamt Lars Vilks á meðan að árásin stóð yfir. "Ég var í kæliklefa og hélt í hönd Lars Vilks. Hann var mjög rólegur. Við sögðum hvoru öðru vonda brandara. Lífverðirnir hans unnu mjög gott starf".

#cphshooting Tweets

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár