Donald Trump hæddist að fötlun blaðamanns New York Times

Bandaríska dagblaðið New York Times hefur gagnrýnt Donald Trump og kallað hann „svívirðilegan“ (e. outrageous) eftir að Trump, sem sækist eftir því að verða forseta­fram­bjóðandi repúblikana, hæddist að einum blaða­manna blaðsins og virtist herma eftir fötlun hans. Frá þessu er greint í The Guardian.

Í ræðu sem Trump hélt á þriðjudags­kvöld hæddist Trump að Serge Kovaleski, blaða­manni New York Times, sem hafði dregið í efa þá full­yrðingu Trump að þúsundir múslima í New Jersey hefðu fagnað árásunum gegn Banda­ríkjunum 11. september 2001. Samhliða snéri Trump upp á hendur sínar, en Kovaleski þjáist af meðfæddum sjúkdómi sem hefur áhrif á hreyfingu liðamóta.

Kovaleski starfaði hjá Washington Post þegar árásirnar voru gerðar og skrifaði meðal annars skýrslu um þær sem kom út árið 2001. Trump vísaði í skýrsluna máli sínu til stuðnings þegar hann sagði þúsundir múslima í New Jersey hafa fagnað árásunum.

Kovaleski sagði í kjölfarið að hann, eða nokkur annar sem kom að gerð skýrslunnar, kannist ekki við að hafa nokkru sinni sagt að hundruðir, hvað þá þúsundir, manna hafi fagnað því þegar World Trade Center turnarnir hrundu.

Hann sagði það sorglega í þessu öllu saman væri það að lágkúru­lega viðbrögð Trump kæmu honum ekkert á óvart. Talsmaður New York Times sagði við Politico að blaðið teldi það „svívirðilegt“ að Trump skyldi hæðast að útliti blaða­mannsins.

Trump sjálfur hefur ekki tjáð sig um málið með beinum hætti en hefur þess í stað sent frá sér röð Twitter-skilaboða þar sem hann ræðst gegn New York Times.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár