Bandaríkjamenn orðnir 320 milljónir, nýr verður til á 16 sekúndna fresti

Bandaríkja­menn verða orðnir fleiri en 320 milljónir um komandi áramót. Þeim hefur fjölgað um tæplega 11,4 milljónir, eða 3,67 prósent, frá því að síðasta heildar­manntal á vegum bandarísku hagstofunnar sem var opinberað 1. apríl 2010. Þetta kemur fram í frétt sem var birt á heimasíðu bandarísku hagstofunnar í dag.

Ljóst er að lítið hægist á fjölgun Bandaríkja­manna á næstu misserum. Í fréttinni kemur fram að í janúar 2015 sé búist við að það fæðist nýr Bandaríkja­maður á átta sekúndna fresti á meðan að einn deyr á tólf sekúndna fresti. Auk þess er ásókn innflytjenda í landið það mikil að einn einstaklingur bætist við heildar­fjölda bandarísku þjóðarinnar á 33 sekúndna fresti. Að öllu þessu saman­lögðu vex því mann­fjöldi Banda­ríkjanna um einn á 16 sekúndna fresti.

Samkvæmt spá bandarísku hagstofunnar mun heildar­fjöldi heimsins aukst um 1,08 prósent á milli ára og verða um 7,2 milljarðar á nýársdag. Talið er að 4,3 einstaklingar muni fæðast og 1,8 einstaklingar deyja á hverri einustu sekúndu í heiminum öllum á hverri sekúndu í janúar 2015.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár