Talibanar loka skólum fyrir afganskar stúlkur klukkutímum eftir að þeir opnuðu aftur

Viðsnún­ing­urinn af hálfu talibana þýðir að kvenkyns nemendur ofar en sjötta bekk fá ekki að sitja tíma.

Stjórn talibana í Afganistan tilkynnti í lok mars að gagn­fræðaskólum stúlkna yrði lokað, klukku­stundum eftir að þeir voru endur­opnaðir í fyrsta skipti í nærri sjö mánuði.

Þessi viðsnúningur í ákvarðana­töku talibana þýðir að kvenkyns nemendur ofar en sjötta bekk munu ekki fá að mæta í skólann.

Í tilkynningu frá menntamála­ráðuneytinu stóð að nú yrði öllum skólum fyrir stúlkur lokað þar til önnur áætlun væri komin upp í samræmi við íslömsk lög og afganska menningu samkvæmt Bhaktar, ríkis­frétta­miðlinum. 

„Við upplýsum alla gagn­fræðaskóla, þá skóla sem að hafa kvenkyns nemendur ofar en sjötta bekk, að þeim verður lokað þar til næsta skipun berst,“ sagði í tilkynningunni.

„Já, það er satt,“ sagði talsmaður Ttalibana, Inamullah Samangani, við AFP frétta­stofuna þegar hún bað hann um að staðfesta tilkynningar um að stúlkum hefði verið skipað að fara heim. 

Hann vildi ekki útskýra ástæður þess, á meðan talsmaður menntamálaráðuneytissins, Aziz Ahmad …

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár