Hreyfingarleysi veldur tvöfalt fleiri dauðsföllum en offita

Tvöfalt fleiri deyja af völdum hreyfingar­leysis en af völdum offitu, samkvæmt niður­stöðum nýrrar rann­sóknar sem unnin var við Cambridge-háskóla og birtist í American Journal of Clinical Nutrition í vikunni. Samkvæmt rann­sókninni getur 20 mínútna göngutúr á hverjum degi dregið stórlega úr hættu á ótímabæru dauðsfalli.

Til að mæla tengsl milli hreyfingar­leysis og ótíma­bærra dauðsfalla, sem og hvernig offita tengist hvoru tveggja, voru gögn um 334.151 karla og konur í Evrópu skoðuð. Á tólf ára tímabili voru hæð, þyngd og ummál mittis mæld og þá var fólk látið meta hversu mikla hreyfingu það fékk.

Samkvæmt niður­stöðum rann­sóknarinnar var munurinn mestur þegar þeir sem hreyfa sig ekkert voru bornir saman við þá sem hreyfa sig frekar lítið. Rann­sakendur meta það sem svo að með því að hreyfa sig sem nemur 20 mínútna göngutúr á dag, sem brennir á bilinu 90 til 110 kaloríum, sé hægt að minnka líkur á ótíma­bærum dauða um 16 til 30 prósent. Með göngutúrnum færist fólk úr algjöru hreyfingar­leysi í næsta hóp, þann sem hreyfir sig frekar lítið.

676 dauðsföll rakin til hreyfingarleysis


Höfundar rann­sókn­ar­innar not­uðu einnig nýj­ustu tölur um dauðs­föll í Evrópu. Þeir telja að 337 þús­und af 9,2 milljón dauðs­föllum meðal Evr­ópu­búa orsak­ist af offitu, það er að fólk hafi verið með BMI stuðul yfir 30. Aftur á móti telja þeir að tvö­falt fleiri eða 676 þús­und dauðs­föll megi rekja til hreyf­ing­ar­leysis.

„Þetta eru einföld skilaboð: smá hreyfing á hverjum degi gæti haft umtals­verð áhrif á heilsu þeirra sem hreyfa sig ekkert. Jafnvel þó við höfum komist að því að aðeins 20 mínútur myndu breyta ýmsu, þá ættum við að horfa til þess að gera meira – það er sannað að hreyfing hefur mikla heilsubót í för með sér og ætti að vera mikil­vægur hluti af daglegu lífi,“ segir Ulf Ekelund prófessor sem leiddi rann­sóknina í viðtali við Science Daily. Nick Wareham prófessor bætir því við að auðveldara geti verið að fá fólk til að stunda hreyfingu af þessu tagi en að fá of feita til þess að léttast mikið. Þó eigi áfram að stefna að því fækka of feitu fólki.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár