Guðmundur Ingi gagnrýndi Perry fyrir að vilja banna hjónaband samkynhneigðra

Umhverfis- og auðlinda­ráðherra lét í ljós „algjöra andstöðu“ sína við laga­setningu í Texas sem Rick Perry, nú orkumála­ráðherra Banda­ríkjanna, stóð fyrir og bannaði hjónaband samkyn­hneigðra. Samskiptin áttu sér stað á fundi með forsætis­ráðherra.

Rick Perry, orkumálaráðherra Bandaríkjanna, Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra og Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlindaráðherra, á fundi sínum á fimmtudag.
Rick Perry, orku­mála­ráð­herra Banda­ríkj­anna, Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra og Guð­mundur Ingi Guð­brands­son, umhverfis- og auð­linda­ráð­herra, á fundi sínum á fimmtu­dag. Mynd: FB-síða umhverfis- og auðlindaráðherra

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, umhverfis- og auðlinda­ráðherra,, gagnrýndi Rick Perry, orkumála­ráðherra Banda­ríkjanna, fyrir laga­setningu um bann við hjóna­bandi samkyn­hneigðra sem hann stóð fyrir á meðan að Perry var ríkis­stjóri í Texas-ríki, á fundi þeirra og Katrínar Jakobs­dóttur forsætis­ráðherra á fimmtudag.

Guðmundur Ingi greinir frá þessu í stöðu­uppfærslu á Facebook og sagði við Perry að hann væri sjálfur samkyn­hneigður og stjórn­völd bæru ríka ábyrgð á laga­setningu sem þessari. „Þau gætu ekki einfald­lega skýlt sér á bak við atkvæða­greiðslur almennings um þær. Perry hefur meðal annars líkt samkyn­hneigð við alkóhólisma og er mótfallinn því að samkyn­hneigðir geti ættleitt börn.“

Perry var staddur hér á landi til að taka þátt í Arctic Circle-ráðstefnunni sem fram fór í Hörpu síðustu daga. Lítið hefur verið gefið upp um innihald fundarins en Guðmundur Ingi segir í stöðu­uppfærslunni sem birtist í gærkvöldi að skila­boðin varðandi loftlags­málin hafi verið skýr „og við lögðum t.a.m. á mikilvægi alþjóðlegrar samvinnu og það að Banda­ríkin verði aftur með í Parísar­samkomu­laginu.

Rick Perry sóttist eftir því að vera forseta­efni Repúblikana­flokksins í forseta­kosningunum 2012 og 2016, en án árangurs. Donald Trump gerði hann að orkumála­ráðherra eftir að hann tók við embættinu. Perry var áður ríkis­stjóri í Texas í fimmtán ár og var þekktur fyrir afar íhalds­sama stefnu þegar kom að ýmsum mann­réttinda­málum. Hann er yfir­lýstur andstæðingur fóstur­eyðinga og hjóna­banda samkyn­hneigðra auk þess sem hann er ötull talsmaður dauða­refsinga, en umfang þeirra jókst mikið í Texas á meðan að hann var þar ríkis­stjóri.

Bauð sig nýverið fram til varaformanns

Guð­mundur Ingi er fyrr­ver­andi fram­kvæmda­stjóri Land­verndar og var beð­inn um að koma inn í rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dóttur eftir að náðst hafði saman um myndun hennar síðla árs 2017. Hann hefur gegnt emb­ætti umhverf­is- og auð­linda­ráð­herra utan þings frá þeim tíma. Hann hefur aldrei verið í fram­boði til Alþingis eða beinn þátt­tak­andi í flokka­póli­tík til þessa. Þess vegna hefur farið lítið fyrir afstöðu hans í málum sem snúa ekki beint að þeim mála­flokki sem hann stýrir í opinberri umræðu.

Guð­mundur Ingi tilkynnti fyrir um viku að hann hefði ákveðið að bjóða sig fram til vara­for­manns Vinstri grænna, og þar með hefja hefð­bundna stjórnmála­þátttöku. Það gerði hann einnig í gegnum stöðu­uppfærslu á Facebook þar sem sagði m.a.: „Ég vil sjá enn fleira umhverf­is­vernd­ar­fólk í brúnni í íslenskum stjórn­málum og hef því ákveðið að bjóða mig fram til vara­for­manns Vinstri grænna á lands­fundi flokks­ins nú í októ­ber. Ég hlakka til að hlusta og heyra, móta og taka þátt í að skapa betri og líf­væn­legri heim fyrir okkur öll, afkom­endur okkar og aðrar líf­verur á Jörð­inn­i.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár