Mál á hendur Öldu Hrönn fellt niður

Settur hér­aðs­sak­sókn­ari hefur fellt niður mál á hendur Öldu Hrönn Jóhanns­dóttur, aðal­lög­fræð­ingi lög­regl­unnar á höf­uð­borg­ar­svæð­inum og tveimur öðrum aðilum. Alda Hrönn var sökuð um að hafa mis­beitt lög­reglu­valdi við rann­sókn á LÖKE-­mál­inu, en tveir sak­born­ingar í mál­inu kærðu hana fyrir rangar sak­ar­giftir og brot í starfi í apr­íl. Við rann­sókn LÖKE-­máls­ins var Alda Hrönn yfir­lög­fræð­ingur hjá lög­regl­unni á Suð­ur­nesj­u­m. Alda Hrönn fór í ótíma­bundið leyfi í októ­ber vegna máls­ins. Hún segir í yfir­lýs­ingu að það hafi verið afar þung­bært að vera borin sökum að til­efn­is­lausu, bæði í kæru og fjöl­miðlum og að þurfa að sæta því að vera leyst frá störfum fyrir það eitt að vinna starf sitt. „Það er gott að rann­sókn­inni sé loks­ins lokið. Ég hef ávallt haldið fram sak­leysi mínu af þeim frá­leitu ásök­unum sem á mig voru bornar og stað­festir nið­ur­staða setts hér­aðs­sak­sókn­ara með ótví­ræðum hætti að engin fótur var fyrir þeim.ˮ Í Frétta­blað­inu er haft eftir Garðari Steini Ólafs­syni, sem er lög­maður eins sak­born­ings í LÖKE-mál­inu, að hann ætli að áfrýja þess­ari nið­ur­stöðu til rík­is­sak­sókn­ara.

Í yfir­lýs­ing­unni segir að settur hér­aðs­sak­sókn­ari hafi kom­ist að því að ekk­ert hafi komið fram við rann­sókn­ina sem styðji þær ásak­anir sem á hana voru bornar og voru til­efni rann­sókn­ar­innar. Í nið­ur­stöð­unni segir meðal ann­ars: „Eins og mál þetta liggur fyrir er þó ekk­ert sem bendir til þess að kærða hafi í heim­ild­ar­leysi rann­sakað málið, aflað upp­lýs­inga, dreift nekt­ar­myndum eða borið rangar sak­ar­giftir á kærendur. Enn fremur hafa ekki komið fram neinar upp­lýs­ingar sem færa rök að því að kærða hafi veitt fjöl­miðlum upp­lýs­ingar sem leynt áttu að fara, eða dreift þeim með ólög­mætum hætti, líkt og haldið er fram í kæru.

Þvert á móti verður að líta svo á að aðkoma kærðu að mál­inu hafi verið í sam­ræmi við munn­leg fyr­ir­mæli rík­is­sak­sókn­ara, eins og upp­lýs­ingar um þau fyr­ir­mæli liggja fyrir.[...]“Að mati setts hér­aðs­sak­sókn­ara hefur því ekk­ert komið fram við rann­sókn­ina sem bendir til þess að kærða, Alda Hrönn, hafi gerst sek um brot á ákvæðum lög­reglu­laga nr. 90/1996, ákvæðum laga um með­ferð saka­mála nr. 88/2008 eða ann­arra ákvæða sér­refsilaga eða almennra hegn­ing­ar­laga sem vísað er til í kærum.“

RÚV greinir frá því að tak­mark­aðar upp­lýs­ingar liggi fyrir um rann­sókn LÖKE-máls­ins svo­kall­aða þar sem skrif­leg gögn varð­andi hana séu af skornum skammti, bæði hvað varðar rann­sókn­ina sjálfa en einnig sam­skipti rík­is­sak­sókn­ara við lög­regl­una á Suð­ur­nesjum varð­andi heim­ildir og rann­sókn­ar­fyr­ir­mæli. Þetta komi fram í grein­ar­gerð Lúðvíks Berg­vins­sonar, setts hér­aðs­sak­sókn­ara, í mál­inu gegn Öldu Hrönn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

4
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

6
Innlent

Hætta á að lánin hækki þó íbúða­verð lækki

Már Wolfgang Mixa hag­fræði­pró­fessor segir að stór hluti eigin fjár íbúða­eig­enda gæti þurrkast út á kom­andi mán­uðum. Verð­tryggðar fast­eigna­skuldir hækki í verð­bólgu­tíð sam­hliða því að íbúða­verð gæti lækkað. Hann leggur til að verð­tryggð hús­næð­is­lán fylgi íbúða­verði en ekki vísi­tölu neyslu­verðs. Þá myndu bank­arnir bera hluta áhætt­unnar.

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár