Konan sem á að taka Youtube upp á næsta stig

Susan Wojciki er forstjóri Youtube, og þar með einn af mikil­vægustu stjórn­endum Google, sem er eigandi myndbands­miðilsins risavaxna. Hún hefur starfað lengi fyrir Google, var starfs­maður númer 16 hjá fyrir­tækinu sem var stofnað 1998. Hún var áður yfirmaður á helsta tekju­sviði Google (Google ads and commerce) en færði sig til Youtube í febrúar á þessu ári.

Wojciki var í tólfta sæti á lista Forbes yfir valdamestu konur heims í fyrra. Hún er 46 ára gömul fjögurra barna móðir, og þykir á meðal mögnuðustu kvenn­fyrirmynda í bandarísku viðskipta­lífi.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár