Fordæmir meðferð Ungverja á flóttamönnum

Ban Ki-moon, framkvæmda­stjóri Sameinuðu þjóðanna, segist vera brugðið (e. shocked) vegna aðgerða Ungverja gegn flótta­mönnum við landamæri landsins. Sú meðferð sem þeir hafi beitt hælis­leitendur sé óásættanleg.

Lögreglan við landamæri Ungverja­lands og Serbíu hafa á síðasta sólar­hring beitt flótta­menn harðræði og notast við táragas og vatns­slöngur til að halda þeim frá landa­mærum Ungverja­lands.


Stjórn­völd í Ungverja­landi hafa varið aðgerðir sínar og sögðu að tuttugu lögreglu­menn hafi slasast þegar flótta­menn reyndu að brjótast sér leið í gegnum vírgirðingar við landa­mærin.


Ungverjar brugðust afdráttar­laust við straumi flótta­manna inn til landsins á þriðjudag þegar ný lög tóku í gildi sem refsivæða ólöglega komu til landsins. Um tvö hundruð þúsund manns hafa þegar farið inn í landið það sem af er ári, og þar með inn á Schengen-svæðið. Flestir halda áfram leið sinni til annarra ríkja Evrópu­sambandsins norðar í álfunni.


Eftir að öllum helstu leiðum frá Serbíu til Ungverja­lands var lokað hafa flótta­menn, flestir frá Sýrlandi en einnig frá öðrum löndum, leitað til Króatíu. Þar hafa stjórn­völd lýst sig reiðubúin til að taka á móti fólkinu og gagnrýndu í gær harkaleg stefnu Ungverja. Margir fleiri hafa gagnrýnt og fordæmt aðgerðir Ungverja, meðal annars hjálpar­samtök, æðsti yfirmaður málefna flótta­manna hjá Evrópu­sambandinu og æðsti framkvæmda­stjóri málefna flótta­manna hjá Sameinuðu þjóðunum.


Samkvæmt nýjustu tölum hafa yfir 6.000 flótta­menn stigið fæti inn til Króatíu á síðustu 24 klukku­stundum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár