Arnþrúður segir ríkissaksóknara vanhæfan vegna samkynhneigðar

Gefnar hafa verið út ákærur á hendur átta einstak­lingum sem Samtökin ‘78 kærðu í fyrravor fyrir hatursáróður. Línurnar á Útvarpi Sögu hafa logað frá því að greint var frá ákærunum í gær. Lögregla vísaði málinu í fyrra frá en ríkis­saksóknari sneri þeirri ákvörðun. Arnþrúður Karls­dóttir á Útvarpi Sögu telur Sigríði Friðjóns­dóttur ríkis­saksóknara vanhæfa þar sem hún sé samkyn­hneigð.

Arnþrúður Karlsdóttir og Pétur Gunnlaugsson
Arn­þrúður Karls­dóttir og Pétur Gunn­laugs­son Pétur er einn þeirra átta sem ákærðir hafa verið fyrir hat­ursá­róður. Þeim Arnþrúði og Pétri finnst illa vegið að tján­ing­ar­frels­inu. Margir sem hringt hafa inn á Útvarp Sögu eru þeim sam­mála. Mynd: Pressphotos

Það er stór áfangi að gefnar hafi verið út ákærur á hendur átta einstaklingum sem Samtökin ‘78 kærðu í fyrravor fyrir haturs­orðræðu. Þetta segir lögmaður samtak­anna, Björg Valgeirs­dóttir.

„Það eitt að þessi mál fari fyrir dóm er mjög mikilvægt. Þetta eru mál af þeim toga sem fara sjaldan fyrir dómstóla,“ segir Björg. Þetta sé rökrétt niður­staða miðað við eðli þeirra ummæla sem samtökin kærðu og í því samhengi sem þau birtust.

Ákæran byggir á 233. grein a í almennum hegningar­lögum, sem hljómar svo:

Hver sem opinber­lega hæðist að, rógber, smánar eða ógnar manni eða hópi manna með ummælum eða annars konar tjáningu, svo sem með myndum eða táknum, vegna þjóðernis, litar­háttar, kynþáttar, trúar­bragða, kynhneigðar eða kynvitundar, eða breiðir slíkt út, skal sæta sektum eða fangelsi allt að 2 árum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár