Frakkar biðja Google, Twitter og Facebook um aðstoð í baráttunni gegn hryðjuverkum

Bernard Cazeneuve, innan­ríkis­ráðherra Frakk­lands, hefur biðlað til tækni­risanna Google, Facebook og Twitter um samvinnu við frönsk stjórn­völd og að þeir fjarlægji áróður hryðjuverka­samtaka af netinu um leið og stjórn­völd láta vita af honum. Frétta­síða Fox News greinir frá málinu.

Í samtali við fjölmiðla, eftir fund með fulltrúum tækni­risanna í San Francisco og Kísil-dalnum, lagði Cazeneuve áherslu á að frönsk stjórn­völd vilji leita eftir samstarfinu til að spara tíma, því langan tíma taki að fá áróður fjar­lægðan af netinu með hefð­bundnum leiðum í gegnum stjórn­sýsluna. „Það skiptir sköpum að við eigum í góðu samstarfi og viðbrögðin séu skjót,“ sagði hann við fjölmiðla.

Frönskum stjórn­völdum er enn ferskt í minni mann­skæðar hryðjuverka­árásir í París í byrjun janúar, þar sem tveir ódæðis­menn skutu tólf manns til bana á ritstjórnar­skrifstofu skop­blaðsins Charlie Hebdo og byssu­maður myrti fjóra sem hann hafði tekið til fanga í matvöru­verslun gyðinga.

Bernard Cazeneuve, innan­ríkis­ráðherra Frakk­lands, við minningar­athöfn sem haldin var eftir skot­árásirnar í París.

Bernard Cazeneuve, innanríkisráðherra Frakklands, við minningarathöfn sem haldin var eftir skotárásirnar í París.
Bernard Cazeneuve, inn­an­rík­is­ráð­herra Frakk­lands, við minn­ing­ar­at­höfn sem haldin var eftir skotárás­irnar í París.

Talsmenn Twitter og Facebook sögðu við fjölmiðla að fyrir­tækin geri það sem í þeirra valdi stendur til að stöðva og fjarlægja áróður hryðjuverka­samtaka þar sem hvatt er til ofbeldis, en vörðust spurningum blaða­manna um hvort tækni­risarnir ætli að þekkjast boð franska innan­ríkis­ráðherrans.

Cazeneuve segir að hann hafi biðlað til tækni­risanna til að taka þátt í barátt­unni gegn áróðri hryðjuverka­samtaka og um leið berjast gegn því að þau geti notað internetið og myndbönd til að fá nýja menn til liðs við sig.

Ekkert lát er á liðsöfnun Íslamska ríkisins og annarra hryðjuverka­samtaka en að minnsta kosti 20.000 manns frá Evrópu og Banda­ríkjunum hafa gengið til liðs við hryðjuverka­samtök að undan­förnu samkvæmt upplýsingum frá bandarísku leyni­þjónustunni, að því er fram kemur í áður­nefndri frétt Fox News.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár